Erlent

Fyrr­verandi kanslari á­kærður fyrir mein­særi

Kjartan Kjartansson skrifar
Fyrri stjórn Sebastians Kurz vegna lausmælgis leiðtoga samstarfsflokksins árið 2019. Sú seinni féll þegar rannsókn hófst á meintri spillingu hans sjálfs.
Fyrri stjórn Sebastians Kurz vegna lausmælgis leiðtoga samstarfsflokksins árið 2019. Sú seinni féll þegar rannsókn hófst á meintri spillingu hans sjálfs. AP/Lisa Leutner

Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, var ákærður fyrir að ljúga að þingnefnd sem rannsakaði hneykslismál sem felldi fyrstu ríkisstjórn hans. Fyrrverandi skrifstofustjóri Kurz er einnig ákærður í málinu.

Saksóknarar sem rannsaka opinbera spillingu lögðu ákæruna á hendur Kurz, Bernhard Bonelli, skrifstofustjóra hans, og öðrum ónefndum einstaklingi fram í Vín í dag. Réttað verður yfir Kurz 18. október. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Ákæran snýst um framburð Kurz um stofnun eignarhaldsfélags utan um sumar ríkiseignir og skipan í stjórn þess fyrir rannsóknarnefnd þingsins á spillingarmáli sem felldi fyrri ríkisstjórn Þjóðarflokks hans og Freslsisflokksins árið 2019. Kurz er sakaður um að hafa ekki sagt satt og rétt frá aðkomu sinni að skipan náins trúnaðarmanns hans sem yfirmanns félags sem heldur utan um ýmsar ríkiseignir.

Kurz hrökklaðist úr embætti eftir að saksóknarar hófu rannsókn á honum og níu öðrum í öðru máli vegna gruns um trúnaðarbrest, spillingu og mútuþægni árið 2021. Kurz og félagar hans eru sakaðir um að hafa notað opinbera fjármuni til þess að fá götublað til þess að birta skoðanakannanir sem var hagrætt og jákvæða umfjöllun um hann til þess að hjálpa honum að ná frama í flokknum og ríkisstjórn.

Ákæran kom honum ekki á óvart

Á ýmsu gekk í ráðuneyti Kurz. Heinz-Christian Strache, varakanslari og leiðtogi samstarfsflokksins Frelsisflokksins, sagði af sér árið 2019 eftir að myndband birtist af honum þar sem hann virtist bjóðast til þess að hagræða ríkissamningum og útskýra hvernig mætti komast í kringum lög um framlög til stjórnmálaflokka fyrir konu sem þóttist vera frænka rússnesk ólígarka á eyjunni Ibiza.

Kurz, sem neitar sök, sagðist ekki hissa á að saksóknarar hefðu ákveðið að ákæra hann þrátt fyrir það sem hann lýsti sem sönnunum fyrir sakleysi hans í færslu á samfélagsmiðlinum X sem áður hét Twitter.

Fréttirnar af ákærunni birtust á meðan Karl Nehammer, eftirmaður Kurz sem kanslari og leiðtogi Þjóðarflokksins, hélt blaðamannafund með Olaf Schulz, kanslara Þýskalands, í morgun. Nehammer sagðist fagna því að skýrleiki fengist í mál Kurz.

Eftir að Kurz sagði af sér sagði hann skilið við stjórnmálin og hóf störf fyrir Thiel Capital, fjárfestingafélag þýsk-bandaríska auðkýfingsins Peters Thiel sem hefur beitt sér fyrir ýmsum jaðarhægrimálefnum vestanhafs.


Tengdar fréttir

Segir skilið við stjórn­málin

Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálin. Hinn 35 ára Kurz sagði af sér sem kanslari í október í kjölfar ásakana um spillingu.

Kanslari Austur­ríkis stígur til hliðar

Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja af sér embættinu í kjölfar mikils þrýstings um það vegna hneykslismáls sem hann og flokkur hans tengjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×