Fótbolti

Arsenal afgreiddi Nottingham Forest í fyrri hálfleik

Siggeir Ævarsson skrifar
Eddie Nketiah skoraði fyrsta deildarmark Arsenal í ár
Eddie Nketiah skoraði fyrsta deildarmark Arsenal í ár Vísir/Getty

Arsenal-menn sluppu með skrekkinn gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag en gestirnir vöknuðu til lífsins undir lok leiks.

Heimamenn voru með mikla yfirburði nær allan leikinn en Forest höfðu aðeins átt tvær marktilraunir þegar um tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Bæði mörk Arsenal komu í fyrri hálfleik. Eddie Nketiah skoraði fyrra markið og Bukayo Saka það seinna.

Á 80. mínútu kom Anthony Elanga inn á í sínum fyrsta leik fyrir Forest en hann kom til liðsins frá Manchester United í sumar. Hann kom með mikinn kraft með sér inn á völlinn og lagði glæsilega upp marktækifæri fyrir Taiwo Awoniyi og boltinn söng í netmöskvunum.

Gestirnir voru ansi líflegir síðustu mínúturnar en náðu þó ekki að nýta sér þennan meðbyr til að jafna leikinn þó svo að sjö mínútum hafi verið bætt við leiktímann og Arsenal lönduðu sigri í fyrsta deildarleik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×