Ekki möguleiki að Klopp taki við þýska landsliðinu Smári Jökull Jónsson skrifar 22. júní 2023 19:00 Jurgen Klopp verður áfram hjá Liverpool. Vísir/Getty Umboðsmaður Jurgen Klopp þvertekur fyrir að Klopp muni taka við þýska landsliðinu fyrir Evrópumótið á næsta ári. Þýska blaðið Bild hefur hafið herferð til að fá Klopp í landsliðsþjálfarastöðuna.
Það hefur lítið gengið hjá þýska landsliðinu í knattspyrnu að undanförnu og tapaði liðið báðum landsleikjum sínum í nýliðnum landsliðsglugga, 1-0 gegn Pólverjum og síðan 2-0 gegn Kólubmíu. Liðið er nú þegar komið með keppnisrétt á Evrópumótinu næsta sumar þar sem mótið verður haldið á þeirra heimavelli. Hansi Flick er núverandi landsliðsþjálfari en það heyrist æ hærra í þeim í Þýskalandi sem vilja skipta honum út fyrir Evrópumótið. Þar hefur nafn Jurgen Klopp oftasy verið nefnt til sögunnar og meðal annars hefur þýska blaðið Bild komið af stað herferð til að sannfæra Klopp um að hætta hjá Liverpool til að taka við Þýskalandi. Hansi Flick á ekki sjö dagana sæla sem landsliðsþjálfari Þýskalands.Vísir/Getty Sú verður ekki raunin ef eitthvað er að marka umboðsmann Klopp. „Hann er með samning við Liverpool og Þýskaland er nú þegar með þjálfara. Þetta er ekki til umræðu,“ sagði Marc Kosicke í viðtali við þýska fjölmiðla í dag. Klopp er samningsbundinn Liverpool þar til sumarið 2025 en hann hefur verið knattspyrnustjóri liðsins síðan árið 2015. Í könnun Bild er Klopp með langflest atkvæði á meðal þeirra sem þýska þjóðin vill að taki við. Hann er með 47% af þeim rúmlega 260.000 sem hafa kosið en Julian Nagelsmann er næstur með 12% atkvæða. Flick er þriðji með 11%.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira