„Verulega skortir á“ í áfrýjun Vals og henni vísað frá Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. júní 2023 15:14 Pablo Bertone var úrskurðaður í fimm leikja bann vegna háttsemi sinnar í leik Vals og Tindastóls sem fram fór þann 18. maí. Vísir/Bára Dröfn Áfrýjunardómstóll Körfuknattleikssambands Íslands, KKÍ, hefur vísað frá áfrýjun Valsmanna í máli Pablo Bertone, leikmanns Vals, vegna fimm leikja banns sem leikmaðurinn fékk að lokinni úrslitakeppninni í vor.
Bertone var dæmdur í fimm leikja bann þann 2. júní síðastliðinn vegna hegðunar sinnar að loknum oddaleiks Vals og Tindastóls í úrslitum Subway-deildar karla. Valsmenn lutu í lægra haldi í leiknum og Tindastóll tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögunni og Bertone var allt annað en sáttur við dómara leiksins. Bertone fór því inn í herbergi dómara að leik loknum og má ætla að það hafi verið til að ræða það sem fram fór á lokasekúndum leiksins. Umdeilt var hvort dæma hefði átt óíþróttamannslega villu á Tindastól í blálok leiksins. Valur áfrýjaði banninu, en áfrýjunardómstóll KKÍ hefur hins vegar vísað áfrýjuninni frá. Í niðurstöðu dómstólsins eru talin upp þau atriði sem þurfa að koma fram í sérstöku áfrýjunarskjali í máli sem þessu áður en segir að „verulega skorti á“ í skjalinu sem Valsmenn sendu inn. „Verulega skortir á, að áfrýjunarskjal það sem barst dómstólnum, uppfylli framangreind skilyrði. Verður því málinu vísað frá ex officio,“ segir í úrskurði áfrýjunardómstólsins, en úrskurðinn má finna í heild sinni með því að smella hér.
Subway-deild karla Valur Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira