Arnór og félagar settu strik í reikninginn í toppbaráttu Füchse Berlin Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. maí 2023 15:45 Arnór Þór fagnar marki. vísir/Getty Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer unnu óvæntan fjögurra marka sigur er liðið tók á móti toppbaráttuliði Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30.
Ef frá eru taldar fyrstu mínúturnar voru Arnór og félagar yfir allan leikinn og náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik, en staðan var 15-12 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Liðið jók svo forskot sitt nokkuð örugglega í upphafi síðari hálfleiks og náði mest sjö marka forskoti í seinni hálfleik. Gestirnir náðu aldrei að ógna forskoti Bergischer af neinu viti og niðurstaðan varð fjögurra marka sigur Arnórs og félaga, 34-30. Arnór þór skoraði fjögur mörk fyrir Bergischer í dag. Füchse Berlin er því enn með 47 stig í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliðum Kiel og Magdeburg þegar liðið á aðeins fjóra leiki eftir á tímabilinu. Bergischer situr hins vegar í áttunda sæti með 30 stig eftir jafn marga leiki. Þá skoraði Arnar Freyr Arnarsson tvö mörk fyrir Melsungen er liðið vann sjö marka sigur gegn Sveini Jóhannssyni og félögum hans í Minden, 28-21. Úrslitin þýða að Minden þarf að sigra að minnsta kosti þrjá af seinustu fjórum leikjum sínum til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni, en Melsungen siglir lygnan sjó um miðja deild. Að lokum unnu Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg öruggan fimm marka sigur gegn Íslendingaliði Gummersbach, 31-26.
Þýski handboltinn Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Íslenski boltinn Stólarnir fastir í München Körfubolti Íslensk hetja sendi Bergen upp í sjöunda himinn: Ein bestu kaup félagsins Fótbolti Sjáðu mark Hákonar og vítavörslurnar þrjár Fótbolti „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Golf Sláandi xG tölfræði hjá Manchester United Enski boltinn Semenya hættir baráttu sinni Sport Grindavík - Njarðvík | Grindvíkingar snúa aftur á sinn heimavöll Körfubolti Bjóða upp á Frank Booker-árskort Körfubolti Afar ólík viðbrögð hjá Hlyni Bærings og Benna Gumm eftir byrjun þáttarins Körfubolti Fleiri fréttir „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Sjá meira