Útgáfu Fréttablaðsins var hætt og útsendingum Hringbrautar sömuleiðis þegar Torg ehf., móðurfélag þeirra, varð gjaldþrota í lok mars. Öllu starfsfólki miðlanna var sagt upp og sagt að sækja eftirstandandi launagreiðslur í ábyrgðarsjóð launa.
Rekstur DV.is, Hringbrautar.is og Iceland Magazine var færður yfir í Fjölmiðatorgið ehf., annars eignarhaldsfélags sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Torgs, stofnaði síðasta haust. Helgi er eigandi Fjölmiðlatorgsins og Jón Þórisson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, stjórnarmaður þess. Nokkrir starfsmenn DV voru ráðnir til áframhaldandi starfa fyrir nýja félagið.
Síðan þá hafa greinar haldið áfram að birtast á vefsíðu Hringbrautar. Engar upplýsingar eru um starfsmenn miðilsins á síðunni og greinar sem þar birtast eru ómerktar.
Íþróttaþættir fyrstu skrefin í endurreisninni
Nú á nýtt líf að færast í Hringbraut. Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV, segir farið verði af stað með vefsjónvarpsþætti sem birtist á vef Hringbrautar, DV og í Sjónvarpi Símans.
Fyrsti þátturinn verður sýndur um helgina en það er „Íþróttavikan“, þáttur sem var áður á dagskrá á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Hann verður á dagskrá vikulega undir stjórn Helga Fannars Sigurðssonar af vefmiðlinum 433. Umfjöllun um Lengjudeildina, Íslandsmótið í knattspyrnu, er á næsta leiti.
„Þetta eru svona fyrstu tvö skrefin í endurreisn Hringbrautar,“ segir Björn.
Á næstu vikum er ætlunin að byrja á nokkrum þáttum til viðbótar undir merkjum Hringbrautar. Auk þess verða valdir þættir af eldra efni Hringbrautar aðgengilegir á sjónvarpi Símans.
„Við ætlum ekki að gleypa heiminn í einum bita. Við ætlum að taka þetta í skrefum og kynna einhverja þætti á næstu vikum. Við ætlum örugglega að byrja á svona þremur, fjórum, allavegana til þess að byrja með,“ segir hann.
Björn verður þó ekki sjálfur yfir dagskrá Hringbrautar. Umsjónarmenn hvers þáttar fyrir sig ráði efnistökum.
Stórir hlutir að gerast. Hringbraut vaknar til lífsins og það eru nýjar stjörnur í húsinu @hrafnkellfreyr @helgifsig pic.twitter.com/RT7NtpwLvf
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) May 4, 2023
Keypti vörumerkin út úr Torgi
Spurður að því hvort að endurreisn Hringbrautar undir fána nýs félags svo skömmu eftir gjaldþrot Torgs sé dæmi um kennitöluflakk bendir Björn á að Helgi Magnússon, eigandi Fjölmiðlatorgs og áður Torgs, hafi keypt vörumerkið fyrir nokkru síðan.
Helgi sagði Heimildinni í síðasta mánuði að eignir tengdar fjölmiðlafyrirtækjunum hafi ekki verið inni í Torgi þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta. Hofgarðar, annað félag í hans eigu, hafi keypt vörumerki Hringbrautar, DV og Fréttablaðsins fyrir hátt í hálfan milljarð króna fyrir tveimur árum. Rökstuddi hann viðskiptin þannig að þeim hafi verið ætlað að styrkja lausafjárstöðu Torgs á þeim tíma.
„Hann er í raun og veru að veita fjölmiðlafólki leyfi til þess að nota þessi vörumerki í sinn rekstur,“ segir Björn.
Hópur verktaka sem starfaði fyrir Torg sagðist um helgina ætla að stefna Helga á þeim forsendum að félag hans hafi haldið áfram að taka við þjónustu þeirra jafnvel þótt hann hafi vitað að það væri ógjaldfært í aðdraganda gjaldþrotsins.