Stefnir í að Man United verði dýrasta íþróttafélag heims Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. apríl 2023 11:00 Leikmenn Manchester United fagna sæti í úrslitum ensku bikarkeppninnar. Michael Regan/Getty Images Allt bendir til þess að heimsmet verði sett þegar Glazer-fjölskyldan loks selur Manchester United.
Sky Sports greinir frá því að Sheikh Jassim frá Katar og Íslandsvinurinn Jim Ratcliffe séu búnir að leggja fram þriðja tilboð sitt í enska knattspyrnufélagið Manchester United. Miðað við verðið sem nefnt er í frétt Sky Sports stefnir í að Man United verði dýrasta íþróttafélag allra tíma. Sheikh Jassim er talinn hafa boðið fimm milljarða punda sem er þó heilum milljarði minna en það sem Glazer-fjölskyldan vill fá fyrir félagið. Tilboð hans segir að Erik Ten Hag muni fá fjármagn til að versla leikmenn sem og að það sé nægur peningur afgangs til að hægt sé að dytta að bæði Old Trafford, heimavelli félagsins, og Carrington-æfingasvæðinu. Tilboð Ratcliffe er ekki jafn glæsilegt en hann virðist aðeins ætla að kaupa meirihluta hlutabréfa eða rúmlega 50 prósent. Glazer-fjölskyldan myndi halda 20 prósent hlutabréfa og því enn hafa töluverð áhrif innan félagsins. Samkvæmt Kaveh Solhekol hjá Sky Sports telur Sheikh Jassim að hann sé með langbesta tilboðið. Jassim muni eiga 100 prósent hlutabréfa, ætli að gera félagið skuldlaust sem og að leggja gríðarlegt fjármagn í innviði þess. „Gera hluti líkt og þá sem Manchester City hefur gert í Manchester,“ segir um tilboð Jassim. Talið er að Glazer-fjölskyldan taki ákvörðun eftir helgi hvort tilboðið hún samþykki eða hvort hún fari fram á fjórða tilboð frá báðum aðilum.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira