Tupperware á barmi gjaldþrots Máni Snær Þorláksson skrifar 11. apríl 2023 23:53 Tupperware er á barmi gjaldþrots. AP/Garrett Cheen Hlutabréf í Tupperware, sem er hvað þekktast fyrir að framleiða samnefnd ílát, hríðféllu í upphafi vikunnar. Fyrirtækið segist nú vera á barmi gjaldþrots. Hvort það nái að lifa af fari eftir því hvort það fái meira fjármagn og hversu hratt það gerist.
Í frétt BBC um málið kemur fram að Tupperware hafi reynt að ná til yngri notendahóps en að ekki hafi tekist að stöðva hnignun á sölunni. Í lok síðustu viku birti fyrirtækið yfirlýsingu um að það væru efasemdir um að það gæti haldið rekstri áfram. Hlutabréf í fyrirtækinu féllu í kjölfarið um tæp 50 prósent í gær og fór verð á hverjum hlut undir tvo dollara. Í samanburði kostaði hver hlutur um hundrað dollara fyrir áratug síðan. Tupperware hefur átt við högg að sækja síðan Covid-19 heimsfaraldrinum lauk. Salan tók kipp upp á við í faraldrinum sökum þess að fólk eldaði meira heima hjá sér. Þegar fólk fór svo að fara út að borða á ný fóru sölutölurnar að lækka. Vörurnar seldar í gegnum heimakynningar Það sem gerir Tupperware vörurnar ólíkar öðrum ílátum er að þær hafa helst verið til sölu í gegnum sjálfstæða söluaðila með heimakynningar. Tupperware ílátin hafa því ekki fundist í verslanahillum í gegnum tíðina. Þessar heimakynningar voru afar vinsælar og í lok níunda áratugarins náðu þær fótfestu hér á landi. Fyrirtækið hóf að selja vöruna eingöngu með þessum hætti um tveimur árum eftir að einstæð móðir að nafni Brownie Wise gerði það. Hún réði svo fleira fólk til að selja vöruna með heimakynningum og gekk það svo vel að hún var gerð að næstráðanda í fyrirtækinu. Þeim Wise og Earl Tupper, sem stofnaði Tupperware árið 1946, lenti þó upp á kant og rak sá síðarnefndi Wise í kjölfarið. Wise kærði fyrirtækið fyrir brottreksturinn, vann málið og fækk árslaun í bætur. Tupper seldi svo fyrirtækið. Leituðu á ný mið Sem fyrr segir reyndi fyrirtækið að ná til yngri notendahóps. Hluti af því fólst í því að selja ekki bara með heimakynningum heldur einnig í gegnum verslanir. Til dæmis mátti finna vörurnar í bandarísku verslunarkeðjunni Target. Þá stækkaði fyrirtækið vöruframboðið sitt og hóf að selja vörur sem ætlaðar eru til eldamennsku. Þar má til að mynda nefna eins konar grill sem virkar í örbylgjuofni.
Matur Bandaríkin Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira