Ríkisstjórn Frakklands heldur velli Árni Sæberg skrifar 20. mars 2023 19:44 Emmanuel Macron Frakklandsforseti fagnar niðurstöðu þingsins væntanlega í hófi, enda bíða hans frekari erfiðleikar á næstunni. EPA/GONZALO FUENTES Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Frakklands var felld með minnsta mun í dag. Ríkisstjórnin heldur því velli á meðan Frakkar mótmæla á götum úti.
Mótmælt hefur verið á götum Frakklands síðustu daga eftir að Emmanuel Macron Frakklandsforseti ákvað að fara fram hjá þinginu til þess að lögfesta frumvarp sitt um hækkun eftirlaunaaldurs um tvö ár. Fari frumvarpið í gegn munu Frakkar þurfa að vinna allt til 64 ára aldurs í stað 62. Á föstudag lögðu þingmenn þriggja flokka í minnihluta franska þingsins fram vantrauststillögu gagnvart ríkisstjórninni. Tillagan var felld í dag með minnsta mun. 278 þingmenn greiddu atkvæði með henni en aðeins níu í viðbót, 287, þurfti til þess að hún yrði samþykkt. Reuters greinir frá. Hefði tillagan hlotið brautargengi hefði ríkisstjórnin þurft að segja af sér en Macron sjálfur hefði setið áfram. Jafnvel þó tillögunni hafi verið hafnað telja sérfræðingar mögulegt að Macron muni hrista upp í ríkisstjórninni til að friða mótmælendur og jafnvel boða til nýrra þingkosninga, þó það sé talið ólíklegt á þessum tímapunkti.
Frakkland Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira