Segir aftur upp þúsundum manna Samúel Karl Ólason skrifar 14. mars 2023 15:25 Mark Zuckerberg, forstjóri Meta. EPA/MICHAEL REYNOLDS Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður.
Í nóvember var ellefu þúsund starfsmönnum Meta sagt upp. sem þá samsvaraði um þrettán prósentum allra starfsmanna Meta, sem þá voru 86.482, fyrir uppsagnirnar. Í færslu sem hann skrifaði á Facebook sagði hann að þessar nýjustu uppsagnir myndu standa yfir út árið, sem hann kallar „ár skilvirkni“. Fyrst á að segja upp fólki í ráðningadeild Meta og verða frekari uppsagnir tíundaðar í apríl eða í maí. „Þetta verður erfitt og það er engin leið til að komast hjá því. Þetta felur í sér að kveðja hæfileikaríkt og ástríðufullt samstarfsfólk sem hefur tekið þátt í velgengni okkar,“ sagði Zuckerberg í áðurnefndri færslu. Hann sagðist þakklátur því fólki sem verður sagt upp. Hann sagði að Meta þyrfti að bregðast við breytingum á hagkerfinu, endalokum lágra stýrivaxta, aukinnar óreiðu á alþjóðasviðinu og nýjar og kostnaðarsamar reglugerðir. Viðskiptamiðlar ytra hafa sagt von á frekari uppsögnum hjá Meta. Síðasta ár var fyrsta árið í sögu Meta sem samdráttur varð á auglýsingatekjum fyrirtækisins og það hefur sömuleiðis tapað miklum fjármunum á sýndarveruleika- og Metaverseþróun. Þá tilkynnti Zuckerberg nýverið nýja tekjuleið fyrir Meta með því að bjóða notendum Facebook og Instagram upp á áskriftarþjónustu. Í frétt Wall Street Journal segir að uppsagnirnar muni að mestu beinast að deildum Meta þar sem unnið er að þróun snjalltækja, sýndarveruleikabúnaðar. Mörgum hjá dótturfyrirtækinu Reality Labs verði líklega sagt upp. Sjá einnig: Vilja þreifa á sýndarheimum framtíðarinnar Forsvarsmenn tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum hafa sagt upp miklum fjölda fólks á undanförnum mánuðum. Samkvæmt vefsíðu þar sem haldið er utan um uppsagnir í geiranum eru þær nærri því þrjú hundruð þúsund frá því í upphafi síðasta árs.
Bandaríkin Meta Facebook Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Mark Zuckerberg sýnir myndir frá Íslandsreisunni Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, virðist hafa notið dvalarinnar á Íslandi vel ef marka má myndir sem hann deildi á samfélagsmiðlinum í kvöld. 27. maí 2022 21:27 Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum. 30. október 2021 09:01 Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira
Mark Zuckerberg sýnir myndir frá Íslandsreisunni Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, virðist hafa notið dvalarinnar á Íslandi vel ef marka má myndir sem hann deildi á samfélagsmiðlinum í kvöld. 27. maí 2022 21:27
Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum. 30. október 2021 09:01