Greint er frá ákvörðuninni í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd Seðlabankans sem birt var 8:30.
Fram kemur í yfirlýsingunni að verðbólga hafi aukist í janúar og mældist 9,9 prósent en undirliggjandi verðbólga hafi haldist óbreytt í 7 prósent.
„Þótt tekið hafi að hægja á húsnæðismarkaði og alþjóðleg verðbólga hafi minnkað lítillega er verðbólguþrýstingur enn mikill og verðhækkanir á breiðum grunni.
Verðbólguhorfur hafa versnað frá síðasta fundi nefndarinnar og þótt verðbólga hafi líklega náð hámarki tekur lengri tíma að ná henni niður í verðbólgumarkmið bankans en áður var talið. Lakari horfur skýrast einkum af því að nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði fela í sér töluvert meiri launahækkanir en þá var gert ráð fyrir. Einnig hefur gengi krónunnar lækkað og útlit er fyrir meiri framleiðsluspennu á spátímanum. Við þetta bætist að útlit er fyrir að aðhald fjárlaga verði minna en gert var ráð fyrir í nóvemberspá bankans þrátt fyrir að dragi úr hallarekstri ríkissjóðs í ár. Verðbólguvæntingar til lengri tíma eru enn vel yfir markmiði og raunvextir bankans hafa lækkað frá síðasta fundi.
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans var hagvöxtur í fyrra 7,1% sem er töluvert meira en gert var ráð fyrir í nóvember og yrði mesti hagvöxtur á einu ári síðan árið 2007 gangi spáin eftir. Horfur eru á minni hagvexti í ár en þó áfram búist við töluverðri spennu á vinnumarkaði.
Peningastefnunefnd telur líklegt að auka þurfi aðhaldið enn frekar á næstunni til þess að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar.
Vextir verða því sem hér segir:
- Daglán 8,25%
- Lán gegn veði til 7 daga 7,25%
- Innlán bundin í 7 daga 6,50%
- Viðskiptareikningar 6,25%
Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi. Á kynningunni gera Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.
Hagfræðingar Landsbankans spáði því að Seðlabankinn myndi hækka stýrivexti um 0,5 prósentur. Sömu sögu var af segja í hjá Arion banka, en Gunnar Örn Erlingsson hjá markaðsviðskiptum Arion banka, spáði í samtali við Innherja að vextir yrðu hækkaðir um 0,5 prósentur.