Skoðun

Gras­rót gegn út­lendinga­frum­varpi

Hópur fólks innan Vinstri grænna skrifar

Enn er reynt að þröngva frumvarpi um útlendinga í gegn um þingið með örlitlum breytingum. Umrætt frumvarp einkennist af útlendingaandúð og virðist hafa það eitt að markmiði að neita fleirum, enn hraðar, um hæli. Um leið er viðkomandi refsað með ómannúðlegri og ómanneskjulegri meðferð, mögulega án læknisaðstoðar eða annarrar virðingar á grunnmannréttindum. Skortur er á samráði við þá aðila sem vinna og koma að málaflokknum, aðilum með sérþekkingu og reynslu, já og eldri kynslóðir útlendinga sem þekkja af eigin raun hvernig betur má að slíku standa. Það sanna ótal umsagnir frá fagaðilum og mannréttindahreyfingum sem hafa ekki ratað inn í frumvarpið.

Það er mikilvægt að standa vel að málefnum innflytjenda og tryggja þeim réttláta málsmeðferð með tilliti til alþjóðlegra laga og reglugerða. Heildarstefnumótun þarf að eiga sér stað sem tekur á móttöku, þjónustu og aðlögun útlendinga og í kjölfar þess nauðsynlegar lagabreytingar. Tryggja þarf að lagabreytingar sem þessar séu unnar í þverfaglegu samráði fagaðila og annarra sérfræðinga, til þess að skapa sátt um stefnu og regluverk í málefnum útlendinga og ættu öll vinnubrögð að einkennast af mannúð. Einnig er mikilvægt að gera lagabreytingar til að bæta stöðu þeirra sem eru hér í umborinni dvöl árum saman án kennitölu og allra réttinda. Þá er endurskoðun atvinnuleyfa líkt og hefur verið boðuð lykilatriði í að auka virkni og þátttöku útlendinga, aukin íslenskukennsla og samstarf við atvinnulífið mikilvægt skref.

Við stöndum framarlega í mörgum málum og erum jafnvel leiðandi í öðrum. Hvers vegna er metnaðurinn ekki meiri og við framúrskarandi í móttöku fólks á flótta, umsækjenda um alþjóðlega vernd og annarra útlendinga? Fjölbreytileiki auðgar öll samfélög og skilar okkur á endanum margfalt meira en við leggjum til. Það er mikilvægt að við tökum vel utan um þennan málaflokk en það gerum við ekki með því að gera þetta frumvarp að lögum.

Undirrituð hafa flest, ásamt yfir 30 félögum Vinstri grænna, sent áskorun á þingflokk Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þar sem skorað er á þingflokkinn að fella frumvarpið.

  • Hólmfríður Árnadóttir, formaður svæðisfélags VG á Suðurnesjum og oddviti Suðurkjördæmis
  • Daníel E. Arnarsson, varaþingmaður VG í Reykjavík suður
  • Elín Oddný Sigurðardóttir, meðstjórnandi stjórnar VG
  • Elva Hrönn Hjartardóttir, meðstjórnandi stjórnar VG
  • Drífa Lýðsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir, varabæjarfulltrúi VG á Akureyri
  • Álfhildur Leifsdóttir, oddviti VG og óháðra Skagafirði
  • Brynhildur Björnsdóttir, varaþingkona VG í Reykjavík suður
  • Sædís Ósk Harðardóttir, meðstjórnandi VG í Árnessýslu og kjördæmisráði Suðurkjördæmis
  • Una Hildardóttir, varaþingkona VG í Suðvesturkjördæmi
  • Valgeir Bjarnason, formaður kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi



Skoðun

Sjá meira


×