Bíll Julian Sands er fundinn Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2023 07:46 Hinn 65 ára Julian Sands er þekktur fyrir að hafa farið með hlutverk í vinsælum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við Smallville og A Room with a View. AP Búið er að finna bíl breska leikarans Julians Sands í San Gabriel-fjöllunum, norður af Los Angeles. Leikarinn hélt í fjallgöngu á Baldy Bowl-svæðinu í síðustu viku og hefur hans verið saknað síðan á föstudag.
Veður hefur verið slæmt á svæðinu síðustu daga sem hefur torveldað leit björgunaraðila. Enn er beðið eftir veður skáni til að hægt sé að senda út björgunarlið á jörðu niðri, en síðustu daga hefur meðal annars verið notast við dróna og þyrlu við leitina. Hinn 65 ára Sands er þekktur fyrir að hafa farið með hlutverk í vinsælum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við The Killing Fields, A Room with a View, 24, Boxing Helena, Leaving Las Vegas og Smallville. Talsmaður lögreglu í San Bernandino-sýslu segir að bíllinn hafi fundist á bílastæði og er gert ráð fyrir að Sands hafi svo haldið í göngu. Fjölskylda Sands hefur nú látið draga bílinn í burtu, að því er segir í frétt BBC. Lögreglu barst tilkynning um að Sands væri saknað um kvöldmatarleytið föstudaginn 13. janúar. Sands hefur búið í Los Angeles frá árinu 2020 og lék síðast í dramamyndinni Benediction sem skartaði einnig þeim Jack Lowden og Peter Capaldi í helstu hlutverkum. Sands fór með hlutverk blóðföður Súperman í Smallville-þáttunum og Vladimir Bierko í 24.
Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Bresks leikara saknað eftir fjallgöngu í Kaliforníu Breska leikarans Julian Sands er saknað eftir að hann hélt í fjallgöngu í San Gabriel-fjöllunum í suðurhluta Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna í síðustu viku. 19. janúar 2023 07:38 Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Fleiri fréttir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Sjá meira
Bresks leikara saknað eftir fjallgöngu í Kaliforníu Breska leikarans Julian Sands er saknað eftir að hann hélt í fjallgöngu í San Gabriel-fjöllunum í suðurhluta Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna í síðustu viku. 19. janúar 2023 07:38