Veður

Tveggja stafa frost­tölur munu sjást á mælum í flestum lands­hlutum

Atli Ísleifsson skrifar
Það verður áfram kalt á landinu.
Það verður áfram kalt á landinu. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir austlægum og norðlægum vindum á landinu í dag þar sem vindhraði verður yfirleitt fremur hægur. Það er helst að það muni blása með austurströndinni þar sem vindhraði verður í kringum tíu metra á sekúndu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það megi búast við éljum á Austurlandi, nærri norðurströndinni og sömuleiðis syðst á landinu fram yfir hádegi. Einnig stöku él allra vestast á landinu.

„Annars staðar á landinu er útlit fyrir þurrt og bjart veður. Það er áfram kalt hjá okkur, tveggja stafa frosttölur sjást væntanlega á mælum í flestum landshlutum, þó frost á bilinu 5 til 8 stig sé algengast.

Norðlæg átt 5-13 á morgun og svolítil él á Norður- og Austurlandi, bjartviðri á Vesturlandi, en líkur á snjókomu syðst á landinu. Herðir heldur á frostinu,“ segir í huðleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og léttskýjað, en dálítil él á Norður- og Austurlandi. Frost 4 til 14 stig.

Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og víða þurrt og bjart veður, en sums staðar lítilsháttar él við ströndina. Frost 5 til 20 stig, mest í lægðum í landslagi.

Á laugardag: Austan og norðaustan 8-15 og bjartviðri, en svolítil él austanlands og með norðurströndinni. Frost 4 til 14 stig.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Allhvöss eða hvöss norðanátt með éljum, en skýjað með köflum og yfirleitt úrkomulaust sunnan heiða. Frost 3 til 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×