Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 13. desember 2022 18:29 Rannsókn lögreglu varðar meint kynferðisbrot gegn tugum stúlkna á grunnskólaaldri. Vísir/Vilhelm Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári.
Mbl.is greinir frá því að brotin, sem hafa verið til rannsóknar, hafi verið sambærilegs eðlis og brotin sem maðurinn, Brynjar Joensen Creed, var dæmdur fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í maí. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum á grunnskólaaldri, sumum oftar en einu sinni, og beitt þær, auk fimmtu stúlkunnar, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreitni. Málið rataði til lögreglu í fyrra eftir kæru stúlku til Barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar. Stúlkan, sem var undir lögaldri, lýsti samskiptum við mann sem kallaði sig Sigga. Hún hafði hitt hann nokkrum sinnum, hann tekið af henni klámfengin myndbönd gegn greiðslu í formi peninga, fata, áfengis og veipvökva. Í eitt skipti hefði hann ekið með hana á afskekktan stað þar sem hún hefði ekki þorað að segja nei þegar hann sagði henni að veita sér munnmök. Þá lýsti stúlkan því að Brynjar hefði keypt kynlífstæki fyrir hana og vinkonu hennar, annan brotaþola í málinu. Hann hefði beðið þær að nota tækið og senda sér myndbönd. Þær hefðu gert það en myndbandið hefði farið í meiri dreifingu. Þannig hefði málið ratað á borð barnaverndar. Stúlkan sagði manninn einnig hafa sent sér myndbönd af öðrum stúlkum stunda munnmök með honum. Tálbeituaðgerð var sett í gang í kjölfarið. Hún fólst í því að lögregla tók yfir síma brotaþola og hélt áfram samskiptum við Brynjar. Aðgerðunum lauk með handtöku þremur dögum síðar. Framkvæmd var húsleit á heimili hans þar sem lagt var hald á fartölvu, flakkara, farsíma, harða tölvudiska, minnislykla og geisladiska. Í ljós kom að Brynjar lét stelpurnar spila stigaleik þar sem hann verðlaunaði þær fyrir kynferðislegar athafnir. Því fleiri stig eftir því sem athafnir voru grófari. Þannig voru fimm stig gefin fyrir að veifa, brosa eða hoppa en þúsund stig fyrir að sýna kynfæri og leika sér með kynlífshjálpartæki. Lögreglumaður sem skoðaði rafræn gögn úr síma Brynjars sagði fyrir dómi að lögregla hefði fundið kennitölur á um 100 stúlkum sem Brynjar hefði verið í sambandi við. Hann hefði verið í kynferðislegum samskiptum við um 240 kvenmenn og þar af hefðu tæplega 110 verið undir átján ára aldri. Í símum Brynjars hefðu líklega verið nokkur hundruð kynferðislegra mynda og myndskeiða.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34 Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35 Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23 Mest lesið Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent Búið að taka sýni úr ungu birnunni Innlent Fleiri fréttir Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Sjá meira
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34
Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35
Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23