Veður

Norðankaldi og dá­lítil él á Norður- og Austur­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Frost verður á bilinu tvö til tólf stig, kaldast inn til landsins.
Frost verður á bilinu tvö til tólf stig, kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðankalda og dálitlum éljum á Norður- og Austurlandi og síðar einnig allra syðst. Annars verður léttskýjað að mestu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það dragi smám saman úr vindi og éljum í dag. Frost verður á bilinu tvö til tólf stig, kaldast inn til landsins.

„Fremur hæg austlæg átt og smá él víð og dreif á morgun, en yfirleitt bjartviðri á Vesturlandi. Áfram fremur hæg norðanátt á fimmudag með dálitilum éjum fyrir norðan og austan.

Talsvert frost um land allt, einkum inn til landsins, en sums staðar frostlaust við suðurströndina.“

Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Kalt er það.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og víða él, en yfirleitt bjart á Vesturlandi. Frost 1 til 12 stig, minnst syðst.

Á fimmtudag: Norðan 5-13 m/s og él á norðanverðu landinu, en léttskýjað syðra. Frost 5 til 14 stig.

Á föstudag: Fremur hæg, breytileg átt og víða dálítil él, en austan 8-15 m/s og snjókoma syðst. Frost 4 til 20 stig, mest í lægðum í landslagi.

Á laugardag: Allhvöss eða hvöss austlæg átt og snjókoma með köflum, einkum á Austurlandi. Dregur úr frosti í bili.

Á sunnudag: Útlit fyrir norðanstorm með snjókomu eða skafrenningi, en úrkomulítið suðvestantil. Talsvert frost um land allt.

Á mánudag: Líklega áfram norvestanstormur með ofankomu á norðanverðu landinu, en úrkomulítið syðra og kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×