Veður

Bjart að mestu en líkur á stöku skúr suð­austan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti um og undir frostmarki en að sjö stiga hita með suðurströndinni.
Hiti um og undir frostmarki en að sjö stiga hita með suðurströndinni. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir fremur hægri, breytilegri átt í dag. Skýjað verður með köflum með norðurströndinni en annars að bjart að mestu.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að þó séu líkur á stöku skúr suðaustanlands. Hiti um og undir frostmarki en að sjö stiga hita með suðurströndinni.

„Á morgun er svo útlit fyrir keimlíkt veður en þó heldur kólnandi. Á miðvikudag snýst síðan í norðaustanáttir með éljum norðan- og austanlands og frostu um allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8 m/s. Bjart með köflum og frost 0 til 6 stig, mildast við ströndina.

Á miðvikudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast austast. Dálítil él, en að mestu bjart sunnan- og vestanlands. Frost víða 1 til 6 stig, en kaldara inn til landsins.

Á fimmtudag og föstudag: Norðaustanátt með éljum, en bjartviðri á Suður- og Suðvesturlandi. Frost um allt land.

Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt og að mestu bjart. Frost 1 til 7 stig.

Á sunnudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og él, en úrkomulítið sunnanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×