Kross 9. umferðar: Adam í paradís og Baumruk hent úr eigin húsi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2022 10:01 Petr Baumruk var hent út úr eigin húsi. stöð 2 sport Níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta lauk í fyrradag. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson stýrði Haukum í fyrsta sinn þegar þeir töpuðu fyrir meisturum Vals og fóru við það niður í fallsæti, Patrekur Jóhannesson gerði góða ferð á sinn gamla heimavöll þegar Stjarnan rústaði Selfossi, FH varð fyrsta liðið til að vinna í KA-heimilinu í vetur, nýliðar ÍR og Harðar voru grátlega nálægt því að vinna sína leiki og ÍBV komst aftur á sigurbraut eftir tvö töp í röð. Umfjöllun og viðtöl úr 9. umferð Olís-deildar karla ÍBV 34-31 Grótta Hörður 31-32 Fram KA 27-30 FH Selfoss 22-35 Stjarnan ÍR 31-31 Afturelding Haukar 32-34 Valur Góð umferð fyrir ... Arnar Freyr Guðmundsson er í hópi markahæstu leikmanna Olís-deildarinnar.vísir/vilhelm Arnar Frey Guðmundsson Eftir fjögur töp í röð, þar af þrjú stór, náði ÍR í jafntefli gegn sjóðheitu liði Aftureldingar í Skógarselinu. Eitt stig var reyndar það minnsta sem ÍR-ingar áttu skilið. Arnar Freyr kom Breiðhyltingum yfir, 31-30, en þeir sofnuðu á verðinum í lokasókn Mosfellinga og Igor Kopyshynskyi jafnaði í 31-31. Arnar Freyr var frábær í leiknum, skaut og skaut og skoraði og skoraði. Alls urðu mörkin tíu og aðeins þrjú af ellefu skotum hans utan af velli geiguðu. Arnar Freyr hefur átt virkilega góða innkomu í lið ÍR í vetur og er markahæsti leikmaður liðsins með 56 mörk. ÍR hefur náð í fimm stig, sem er fimm stigum meira en flestir bjuggust við, og með jafnteflinu í fyrradag komst liðið upp úr fallsæti. Adam Thorstensen Markvarsla Stjörnunnar hefur verið döpur í vetur en það var ekkert dapurt við frammistöðu Adams á Selfossi. Hann varði sautján skot, eða tæplega helming þeirra skota sem hann fékk á sig í þrettán marka stórsigri Stjörnumanna, 22-35. Adam hefur allt að bera til að verða einn besti markvörður landsins, nema stöðugleika. En hann er bara tvítugur og góðu leikjunum fjölgar vonandi með tímanum. Eftir erfiðan kafla hefur Stjarnan unnið þrjá leiki í röð og er komin upp í 5. sæti deildarinnar. Aðeins Afturelding hefur fengið á sig færri mörk að meðaltali í vetur en Stjarnan (27,8) þrátt fyrir að aðeins tvö neðstu lið deildarinnar séu með verri hlutfallsmarkvörslu. En með betri markvörslu (segjum yfir þrjátíu prósent að meðaltali í leik) eru Stjörnunni flestir vegir færir. Rúnar Kárason Enn og aftur rauk úr byssunni sem hægri höndin á Rúnari er þegar ÍBV lagði Gróttu að velli í Eyjum, 34-31. Rúnar skoraði ellefu mörk úr sextán skotum og var besti maður vallarins. Rúnar hefur verið frábær í vetur og sennilega besti leikmaður deildarinnar. Ekki mæðir jafn mikið á honum í vörninni og á síðasta tímabili og hann getur sett enn meiri kraft í sóknina þar sem fáir standast honum snúning. Rúnar er markahæsti leikmaður deildarinnar með 68 mörk og skotnýting hans er frábær, eða 63,6 prósent. Ef Rúnar hittir á rammann er nánast öruggt að mark bætist við á töfluna. Litlu breytir þótt markverðirnir fari í rétt horn eða standi þar jafnvel; skotin hans eru bara svo föst að það jaðrar við ofbeldi. Slæm umferð fyrir ... Eins og nær öll skot ÍR-inga fór þetta hjá Friðrik Hólm Jónssyni framhjá markvörðum Mosfellinga.vísir/vilhelm Markverði Aftureldingar Markvarslan hjá Aftureldingu hefur verið talsvert betri á þessu tímabili en því síðasta. En frammistaða markvarða Mosfellinga í Skógarselinu á mánudaginn minnti á gamla og slæma tíma. Þeir Jovan Kukobat og Brynjar Vignir Sigurjónsson vörðu aðeins samtals fimm skot og voru báðir með fjórtán prósent hlutfallsmarkvörslu. Almáttugur. Miðað við það er kannski bara ágætt að Afturelding hafi þó fengið stig gegn ÍR. Fyrir Gunnar Magnússon var frammistaða markvarðanna hans á mánudaginn þó vonandi bara frávik og hún kemst fljótt aftur í samt horf. Útispilara Gróttu Ekkert var undan frammistöðu hornamanna Gróttu í leiknum gegn ÍBV að kvarta. Þeir Þorgeir Bjarki Davíðsson, Jakob Ingi Stefánsson, Andri Þór Helgason og Ágúst Emil Grétarsson skoruðu samtals tuttugu mörk úr aðeins 23 skotum. Það var hins vegar alveg hægt að kvarta yfir frammistöðu útispilara Gróttu í leiknum í Eyjum. Birgir Steinn Jónsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla og skarð hans er vandfyllt. En þeir sem eftir eru eiga að geta gert betur. Í leiknum gegn ÍBV skoruðu útispilarar Gróttu samtals tíu mörk úr 25 skotum. Daníel Örn Griffin átti sérstaklega erfitt uppdráttar á sínum gamla heimavelli og klikkaði á sex af átta skotum sínum og Akimasa Abe var með eitt mark en tapaði boltanum fjórum sinnum. KA KA hafði ekki tapað fyrir FH í KA-heimilinu síðan liðið kom aftur upp í efstu 2018. En snemma í viðureign liðanna á sunnudaginn stefndi í að það myndi breytast. FH-ingar voru mun sterkari aðilinn, skoruðu að vild og fóru með sjö marka forskot til búningsherbergja. KA-menn lentu mest átta mörkum undir en loks þegar þeir lentu með smettið í stéttinni risu þeir upp og gerðu leikinn spennandi. KA minnkaði muninn í eitt mark, 26-27, en FH skoraði þrjú af síðustu fjórum leiksins og tryggði sér sigurinn. Þetta var fyrsta tap KA-manna á heimavelli en það fimmta í heildina. KA er í 8. sætinu með sex stig sem er alltílæ ekki gott en liðið hefur bara unnið nýliðana hingað til. Fokk, við þurfum að hafa áhyggjur Eftir gott gengi hefur Selfoss tapað tveimur leikjum í röð. Það kom engum í opna skjöldu að Selfyssingar skildu tapa á heimavelli meistara Valsmanna en tapið fyrir Stjörnumönnum á sunnudaginn skilur eflaust eftir sig beiskt bragð í munni Sunnlendinga. Það er ekkert skrítið að tapa fyrir sterku liði Stjörnunni en það er ljótt að tapa með þrettán mörkum fyrir því og það á heimavelli. Selfyssingar byrjuðu leikinn ágætlega en urðu verri eftir því sem á hann leið og úrslitin voru ráðin snemma í seinni hálfleik. Þórir Ólafsson og aðstoðarmenn hans þurfa kannski að byrja að bryðja kvíðalyf en Selfyssingar þurfa að vera fljótir að snúa genginu við og verða eiginlega að fá jákvæða niðurstöðu út úr leiknum á Varmá á mánudaginn. Hent út úr eigin húsi Eins og allir á Ásvöllum, nema dómararnir, sá gamla Haukahetjan Petr Baumruk að boltinn fór af Stiven Tobar Valencia og út af áður en hann kom Val 22-23 yfir gegn Haukum. Baumruk lét í sér heyra, full mikið að mati Ramunas Mikalonis sem lét vísa honum í burtu. Það endaði með því að Baumruk fór út úr íþróttasalnum. Baumruk er húsvörður á Ásvöllum og var því vísað út úr eigin húsi. Það þurfti kjark til þess enda á Baumruk Ásvelli en það hefði ekki þurft að koma til þess ef dómararnir hefðu bara fylgst betur með. Besti ungi leikmaðurinn Ein stærsta ástæða þess að FH hefur unnið sex leiki í röð í deild og bikar er frammistaða Einars Braga Aðalsteinssonar, eins af Stubbunum í liði Fimleikafélagsins. Einar Bragi átti afbragðs leik þegar FH vann langþráðan sigur í KA-heimilinu um helgina. Hann skoraði sjö mörk, gaf tvær stoðsendingar, eina vítasendingu og fiskaði tvö víti. Þá stóð hann vaktina vel í vörninni að vanda. Eftir að Egill Magnússon hrökk úr skaftinu hefur Einar Bragi fengið stærra hlutverk og meiri ábyrgð í FH-sókninni og tekið því fagnandi. Í síðustu fimm deildarleikjum FH sem allir hafa unnist hefur Einar Bragi skorað samtals 28 mörk, eða 5,6 mörk að meðaltali í leik. Tölfræði sem stakk í augun Meira og minna öll skot fyrir utan í leik ÍR og Aftureldingar fóru í netið.vísir/vilhelm Útispilararnir í leik ÍR og Aftureldingar voru í miklum ham í leik liðanna í Skógarselinu. Alls voru 35 af 62 mörkum í leiknum skoruð með skotum fyrir utan. ÍR-ingar skoruðu tuttugu mörk í þrjátíu skotum fyrir utan og Mosfellingar fimmtán mörk í 25 skotum. Það gerir 64 prósent nýtingu sem er stórgott en sýnir líka hversu döpur markvarslan í leiknum var. Menn leiksins samkvæmt HB Statz Rúnar Kárason (ÍBV) - 8,59 Stefán Darri Þórsson (Fram) - 8,07 Einar Rafn Eiðsson (KA) - 8,62 Adam Thorstensen (Stjarnan) - 8,91 Arnar Freyr Guðmundsson (ÍR) - 7,68 Andri Már Rúnarsson (Haukar) - 7,81 Handboltarokk umferðarinnar Kansas-sveitin Puddle of Mudd er ein af höfuðsveitum handboltarokksins. Þeirra þekktasta lag, „Blurry“, er kraftballaða úr efstu hillu, glæsileg blanda af tilgerð og rembingssöng. Og þetta fór svona líka vel ofan í Kanann enda var „Blurry“ vinsælasta rokklag ársins 2002 í Bandaríkjunum. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=xJJsoquu70o">watch on YouTube</a> Næsta umferð Svona lítur 10. umferð Olís-deildar karla út.hsí
Olís-deild karla Tengdar fréttir „Einn mesti stormur í vatnsglasi sem ég hef upplifað“ Hrannari Guðmundssyni, þjálfara kvennaliðs Stjörnunnar, finnst Valsmenn vera full viðkvæmir þessa dagana og bendir á viðbrögð þeirra við umræðunni um Tryggva Garðar Jónsson og styrk Ferencváros sem Valur sigraði í Evrópudeildinni. 15. nóvember 2022 13:32 Umræðan truflaði ekki Tryggva: „Vonandi setur Snorri mig bara meira inn á“ Tryggvi Garðar Jónsson fékk tækifærið í sigri Vals á Haukum í Olís deild karla í handbolta í gær og skoraði fjögur mörk í tveggja marka sigri. Eftir leikinn ræddi hann í beinni við Stefán Árna Pálsson í Seinni bylgjunni. 15. nóvember 2022 12:30 Logi Geirs valdi íslenska landsliðshópinn fyrir HM: „Spennandi tímar fram undan“ Seinni bylgjan var á dagskránni í gær og þar var ekki bara fjallað um Olís deild karla í handbolta. Það styttist í heimsmeistaramótið 2023 þar sem íslenska landsliðið ætlar sér stóra hluti. 15. nóvember 2022 11:30 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Sjá meira
„Einn mesti stormur í vatnsglasi sem ég hef upplifað“ Hrannari Guðmundssyni, þjálfara kvennaliðs Stjörnunnar, finnst Valsmenn vera full viðkvæmir þessa dagana og bendir á viðbrögð þeirra við umræðunni um Tryggva Garðar Jónsson og styrk Ferencváros sem Valur sigraði í Evrópudeildinni. 15. nóvember 2022 13:32
Umræðan truflaði ekki Tryggva: „Vonandi setur Snorri mig bara meira inn á“ Tryggvi Garðar Jónsson fékk tækifærið í sigri Vals á Haukum í Olís deild karla í handbolta í gær og skoraði fjögur mörk í tveggja marka sigri. Eftir leikinn ræddi hann í beinni við Stefán Árna Pálsson í Seinni bylgjunni. 15. nóvember 2022 12:30
Logi Geirs valdi íslenska landsliðshópinn fyrir HM: „Spennandi tímar fram undan“ Seinni bylgjan var á dagskránni í gær og þar var ekki bara fjallað um Olís deild karla í handbolta. Það styttist í heimsmeistaramótið 2023 þar sem íslenska landsliðið ætlar sér stóra hluti. 15. nóvember 2022 11:30