„Við erum hér til að sækja vernd fyrir nafnið á landinu okkar“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. september 2022 11:54 Deilan á milli íslenskra yfirvalda og forsvarsmanna verslunarkeðjunnar Icelanda hefur staðið yfir í nokkur ár. Vísir Munnlegur málflutningur í máli íslenskra stjórnvalda gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods vegna vörumerkjaskráningar verslunarkeðjunnar á orðinu Iceland hófst í morgun.
Málflutningurinn fer fram í höfuðstöðvum Hugverkastofu Evrópusambandins á Alicante á Spáni. Þar hafa níu meðlimir fjölskipaðrar áfrýjunarnefndar stofnunarinnar hlustað á málflutning fulltrúa íslenskra yfirvalda og verslunarkeðjunnar. Tekist á um hvort að fyrirtæki geti átt heiti fullvalda ríkis Í afar stuttu máli snýst deilan um það hvort að fyrirtæki geti slegið eign sinni á heiti fullvalda ríkis, í þessu tilviki enska orðið Iceland. Ásdís Magnúsdóttir er lögmaður íslenska ríkisins í málinu. Ísland hafði betur í deilunni á fyrri stigum málsins árið 2019. Iceland Foods áfrýjaði hins vegar niðurstöðunni. Ákveðið var að halda munnlegan málflutning vegna málsins, sem er afar sjaldgæft, og til marks um hversu mikilvægt það er talið. Það er lögmaðurinn Ásdís Magnúsdóttir, frá Árnason Faktor, sem flytur málið fyrir hönd Íslands. „Við erum hér til að sækja vernd fyrir nafnið á landinu okkar,“ var á meðal þess sem kom fram í máli Ásdísar í morgun. Málflutningurinn er um það bil hálfnaður og lýkur síðdegis í dag. Áhugafólk um hugverkarétt fylgist grannt með Margrét Hjálmarsdóttir, yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar, er ein af þeim sem setið hefur límd við skjáinn í morgun til að fylgjast með málflutningi beggja aðila. „Rök Íslands eru eins og verið hefur að heitið Iceland sé heiti fullvalda ríkis og ætti í raun að ráða yfir eigin heiti. Heitið eigi þar af leiðandi ekki að vera einkaréttur neins einstaklings eða fyrirtækis og hvað þá erlends fyrirtækis,“ segir Margrét um það sem fram hefur komið í morgun. Margrét Hjálmarsdóttir er yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar. „Þau byggja líka á rökunum sem voru reifuð í úrskurði á fyrri stigum málsins, að neytendur í Evrópu hafi sterk söguleg tengsl við Ísland. Neytendur í Evrópu þekki heitið Iceland og tengi það við vörur frá Íslandi, telji þær vera frá Íslandi, alveg sama hvaða vörur það eru. Merkið Iceland skorti þar af leiðandi sérkenni sem er grundvallarkrafa í vörumerkjarétti, sé lýsandi fyrir landfræðilegan uppruna og villandi ef uppruninn er ekki frá Íslandi,“ segir Margrét. Í málflutningum í morgun hefur einnig mátt heyra að málflutningur Íslands byggist á því Ísland gæti verið þekkt fyrir framleiðslu á hvaða vörum sem er. Á landinu sé fátt því til fyrirstöðu að framleiða allt mögulegt, sökum hás menntunarstigs, gnægð auðlinda og þar fram eftir götunum. Breska verslunarkeðjan Iceland er fyrirferðarmikil á Bretlandi. Hún hefur lengst af sérhæft sig í frosnum vörum. Í málflutninginum í dag sagði Gerald Vos, lögfræðingur keðjunnar, að nafnið Iceland væri til marks um sérhæfingu keðjunnar í frosnum vörum.In Pictures/Corbis/Getty Í málflutningi fyrir hönd Iceland Foods hefur Gerald Vos, lögmaður fyrirtækisins, reynt að draga úr þessu og sagt að í raun sé Ísland þekkt fyrir náttúrufegurð, fisk og fiskafurðir, en ekki mikið annað en það. „Það er kannski hinn póllinn. Þeirra rök á móti er að Ísland er lítið, við erum norður í Atlantshafi, það er ekki byggilegt nema að litlu leyti, hér er kalt og dimmt og landið ekki vænlegt fyrir þá framleiðslu sem er tilgreind í flokkum umsóknarinnar.“ Endanleg niðurstaða hafi gríðarlega fordæmisgefandi áhrif Hluti af málflutninginum er að meðlimir nefndarinnar hafa spurt bæði Ásdísi og Vos spjörunum úr, um hinu ýmsu hliðar málsins. Í fyrsta lögði þeir spurningar fram fyrirfram en þeir hafa einnig spurt viðbótarspurninga. Margrét segir að þetta sé kosturinn við hinn munnlega málflutning. „Það er kosturinn við þennan munnlega málflutning að það kemst aðeins meira að heldur en í skriflegum málflutningi sem er meginreglan.“ Málflutningurinn stendur yfir í dag og að honum loknun mun nefndin fjalla um málið og úrskurða í því. Ekki er ljóst hvenær von er á niðurstöðu í málinu. Vonir standa þó til að það geti verið í byrjun næsta árs. Niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar er hægt að áfrýja til Evrópudómstólsins, sem myndi þá taka lokaákvörðun í málinu. „Það væri þá endanleg niðurstaða sem hefði þá gríðarlega fordæmisgefandi áhrif inn í vörumerkjaréttinn, á hvorn veginn sem fer.“
Deila Íslands og Iceland Foods Höfundarréttur Utanríkismál Tengdar fréttir Til marks um hve mikilvægt Iceland-málið er talið vera Það að fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hlýði á munnlegan málflutning í deilu íslenskra yfirvaldra og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er talið til marks um hversu mikilvægt málið er talið vera. Vonast er til þess að niðurstaðan verði fordæmisgefandi. 6. september 2022 14:15 Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli. 2. ágúst 2022 14:05 Telja ekkert gefa grænt ljós á að ríkjaheiti njóti verndar frá vörumerkjaskráningu Breska verslunarkeðjan Iceland Foods telur að markmið íslenskra stjórnvalda í deilunni um yfirráð yfir vörumerkinu Iceland sé að koma á fót reglu þess efnis að undir engum kringumstæðum verði hægt að skrá ríkjaheiti sem vörumerki. Iceland Foods telur að þetta eigi sér enga stoð í reglugerðum eða alþjóðasáttmálum. 28. nóvember 2021 07:00 Íslandi barst liðsauki frá Sviss í deilunni gegn Iceland Foods Svissnesk samtök sem hafa það hlutverk að vernda orðspor þarlendrar framleiðslu hafa komið Íslandi til stuðnings í deilunni við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods. Framkvæmdastjóri samtakanna telur líklegt að deilan muni á endanum fara fyrir Evrópudómstólinn. 18. nóvember 2021 09:00 Er hægt að eignast vörumerkið Jamaíka og selja ís undir því nafni? Eitt af þeim álitaefnum sem fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) þarf að taka afstöðu til í deilu Íslands og verslunarkeðjunnar Iceland Foods er hvort að ásættanlegt sé að selja banana undir nafni Íslands eða ís undir nafni Jamaíku. 17. nóvember 2021 11:28 Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019. 2. nóvember 2021 09:00 Mest lesið Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Viðskipti innlent Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Sjá meira
Til marks um hve mikilvægt Iceland-málið er talið vera Það að fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hlýði á munnlegan málflutning í deilu íslenskra yfirvaldra og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er talið til marks um hversu mikilvægt málið er talið vera. Vonast er til þess að niðurstaðan verði fordæmisgefandi. 6. september 2022 14:15
Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli. 2. ágúst 2022 14:05
Telja ekkert gefa grænt ljós á að ríkjaheiti njóti verndar frá vörumerkjaskráningu Breska verslunarkeðjan Iceland Foods telur að markmið íslenskra stjórnvalda í deilunni um yfirráð yfir vörumerkinu Iceland sé að koma á fót reglu þess efnis að undir engum kringumstæðum verði hægt að skrá ríkjaheiti sem vörumerki. Iceland Foods telur að þetta eigi sér enga stoð í reglugerðum eða alþjóðasáttmálum. 28. nóvember 2021 07:00
Íslandi barst liðsauki frá Sviss í deilunni gegn Iceland Foods Svissnesk samtök sem hafa það hlutverk að vernda orðspor þarlendrar framleiðslu hafa komið Íslandi til stuðnings í deilunni við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods. Framkvæmdastjóri samtakanna telur líklegt að deilan muni á endanum fara fyrir Evrópudómstólinn. 18. nóvember 2021 09:00
Er hægt að eignast vörumerkið Jamaíka og selja ís undir því nafni? Eitt af þeim álitaefnum sem fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) þarf að taka afstöðu til í deilu Íslands og verslunarkeðjunnar Iceland Foods er hvort að ásættanlegt sé að selja banana undir nafni Íslands eða ís undir nafni Jamaíku. 17. nóvember 2021 11:28
Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019. 2. nóvember 2021 09:00
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent