Á förum frá Arsenal | Hvert mark kostaði 4,5 milljónir Valur Páll Eiríksson skrifar 20. ágúst 2022 14:31 Pépé náði aldrei að finna sig í Lundúnum. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Nicolas Pépé er sagður á leið til Nice í Frakklandi á láni frá Arsenal. Óhætt er að segja að Fílabeinsstrendingurinn hafi ekki slegið í gegn í Lundúnum.
Pépé var einn heitasti bitinn á markaðnum sumarið 2019 en hann hafði þá skorað 22 deildarmörk og lagt upp ellefu að auki fyrir Lille í frönsku úrvalsdeildinni tímabilið áður. Mörg stórlið í Evrópu litu hýru auga til kappans en Arsenal vann kapphlaupið um hann. Hann varð dýrasti leikmaður í sögu félagsins er það borgaði Lille 72 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Hann fór hægt af stað og náði ekki að finna markaskónna sem höfðu gert hann svo eftirsóttan. Hann skoraði fimm mörk á sinni fyrstu leiktíð en það virtist þó ætla að birta til leiktíðina 2020-21, þar sem hann skoraði tíu mörk í deild og sex í Evrópu. Hann féll hins vegar úr náðinni og hefur aldrei verið ofarlega á lista Mikels Arteta frá því að hann tók við liðinu. Hann lék 20 leiki í deild á síðustu leiktíð, flestalla af varamannabekknum, og skoraði aðeins eitt mark. Hann er nú sagður á leið til Nice í Frakklandi á láni en hann mun þar hitta annan fyrrum Arsenal-mann í Aaron Ramsey, sem kom til liðsins frá Juventus í sumar. Þeir náðu þó ekki að leika saman í Lundúnum þar sem Ramsey fór til Juventus sama sumar og Pépé fór til Arsenal. Pépé skoraði alls 16 deildarmörk á þremur leiktíðum fyrir Arsenal og borgaði félagið því 4,5 milljónir punda, tæplega 750 milljónir króna, fyrir hvert þeirra ef litið er til kaupverðsins.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira