Gefur út skólínu á lokametrum meðgöngunnar Elísabet Hanna skrifar 17. ágúst 2022 11:48 Andrea og JoDis hafa áður átt farsælt samstarf. Hlín Arngrímsdóttir Fyrirsætan og tískubloggarinn Andrea Röfn Jónasdóttir er að gefa út nýja samstarslínu með danska skómerkinu JoDis en samstarf þeirra hefur vakið mikla lukku fram að þessu. Vísir náði tali af Andreu þar sem hún var stödd á fæðingardeildinni í Boston í gangsetningu.
Skómerkið JoDis er þekkt fyrir það að hanna skólínur í samstarfi við mismunandi aðila í tískuheiminum og hafa meðal annars gefið út línu með GDRN og Möschu Vang. Nú hefur Andrea Röfn hefur hannað nýja skólínu í samstarfi við danska skómerkið sem er væntanleg í lok vikunnar. View this post on Instagram A post shared by Andrea Ro fn (@andrearofn) Tímamismunurinn smá áskorun „Okkur finnst gaman að fá gestahönnuði í teymið okkar sem hafa mismunandi stíl og bakgrunn, það hvetur til fjölbreytileika og nýjunga í hönnun okkar” segir Bragi Jónsson eigandi JoDis. Andrea segir samstarfið ganga mjög vel enda ekki í fyrsta skipti sem þau sameina krafta sína:„Ferlið gekk mjög vel. Ég er stödd í Bandaríkjunum og restin af teyminu í Kaupmannahöfn þannig að fjarlægð og tímamismunur eru alltaf smá áskorun. Eftir nokkurra ára samvinnu erum við hins vegar orðin eins og vel smurð vél og samstarfið verður bara betra með hverri línunni. Við byrjuðum á þessari línu fyrir tæpu ári og nýttum tímann vel til að hver einasta týpa myndi passa vel inn í heildarmyndina.“ Skórnir ERNA frá JoDis by AndreaHlín Arngrímsdóttir. Andrea elskar haustið Hönnunarferlið á línunni hófst í lok ársins 2021 og segist Andrea halda mikið upp á haustið: „Ég elska að geta klæðst fleiri lögum af flíkum. Þá blanda ég oft saman stórum trefli, þykkari húfu og flottri kápu sem ég næ í aftast í skápnum mínum eftir sumarið,” segir hún um árstíðina. Hún segir einnig haust skófatnað oft geta verið aðeins líflegri í litum og mynstrum. Það varð innblástur að því hvernig nýja línan var útfærð. „Í þessari haustlínu held ég að við höfum fundið hinn fullkomna milliveg hvað varðar haust litapallettu. Hún samanstendur af jarðlitum, nokkrum pastellitum og loks uppáhalds prentinu mínu, snákaskinni,” segir Andrea. Hlín Arngrímsdóttir Erfitt að velja eina uppáhalds týpu „Ég á ekki auðvelt með að gera það upp við mig hver mín uppáhalds týpa er í þetta skiptið,“ segir Andrea aðspurð hvaða skór séu í toppsætinu. „ERNA sem var hluti af lítilli jólalínu fyrsta árið mitt er að koma aftur í nýjum litum og ég hef alltaf haldið mikið upp á þá týpu. Ég er líka mjög spennt fyrir IRENA sem er uppfærð útgáfa af tveimur eldri týpum sem fengu mjög góðar viðtökur.“ Litavalið í línunni er skemmtilegt og hefur hana lengi langað að vinna með þá liti og prent: „Ólífugræni liturinn hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og svo hefur mig lengi langað að vinna með snakeskin prentið.“ Andrea var spennt fyrir snakeskin prentinu.Hlín Arngrímsdóttir Endurunnar plastflöskur Fyrrum samstarfslínur JoDis by Andrea Röfn hafa náð miklum vinsældum á Íslandi en nú er komin ný haustlína sem samanstendur af tíu stílum. Einnig koma tveir nýjir stílar sem eru vegan og eru framleiddir úr endurunnum plastflöskum. Í gangsetningu upp á fæðingardeild í Boston Þessa dagana er Andrea að bíða eftir sínu öðru barni með eiginmanni sínum, fótboltamanninum Arnóri Ingva, en fyrir eiga þau eina dóttur. Fjölskyldan er búsett í Boston þar sem Arnór hefur verið að spila með bandarísku fótboltaliði. Aðspurð hvað sé framundan stendur aldeilis ekki á svörum: „Það er svo sannarlega mikið framundan hjá mér. Í þessum skrifuðu orðum er ég í gangsetningu á fæðingardeild í Boston og bíð eftir komu sonar okkar í heiminn. Fljótlega flytjum við fjölskyldan svo búferlum aftur til Svíþjóðar. View this post on Instagram A post shared by Andrea Ro fn (@andrearofn) Þessu fylgja blendnar tilfinningar, að búa í Boston hefur verið frábært ævintýri en við erum líka mjög tilbúin í skandinavíska lífstílinn á ný,“ segir Andrea um breytingarnar framundan. „Það þýðir líka að ég verð ennþá nær JoDis teyminu sem er frábært,“ segir hún um staðsetninguna og bætir við að lokum: „Svo er það auðvitað nýja skólínan sem fer í verslanir á föstudaginn sem ég er afar stolt af.“
Tíska og hönnun Bandaríkin Svíþjóð Ástin og lífið Tengdar fréttir Stökkið: „Við höfum búið saman í Vín, Aþenu, Malmö og nú Boston“ Andrea Röfn Jónasdóttir hefur verið búsett í Vínarborg, Aþenu og Malmö en á síðasta ári flutti fjölskyldan til Boston þar sem eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason spilar fótbolta í MLS deildinni. 6. mars 2022 09:00 Andrea Röfn og Arnór Ingvi eiga von á öðru barni Hjónin Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason tilkynntu í dag að þau eiga von á sínu öðru barni með því að birta sónarmyndir á Instagram. Þau eru búsett í Boston þar sem Arnór spilar fótbolta í MLS deildinni. 24. mars 2022 14:49 Hannaði tíu stíla skólínu í samstarfi við danskt skómerki „Konurnar í kringum mig veittu mér innblástur og ég hugsaði mikið til þeirra í ferlinu. Annars kom þetta svolítið til mín, ég er mjög ákveðin þegar kemur að skóm og hef sterkar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hvert smáatriði,“ segir Andrea Röfn sem hannaði sína fyrstu skólínu í samstarfi við danska skómerkið JoDis. 1. september 2020 20:00 Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi. 15. ágúst 2022 11:31 Arnór Ingvi og Andrea Röfn eignuðust stúlku „Til hamingju. Arnór Traustason eignaðist stúlku í dag.“ 21. febrúar 2019 10:30 Arnór Ingvi flaug ekki með félögum sínum til London en nær samt Chelsea leiknum Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö FF spila í kvöld við Chelsea í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. 21. febrúar 2019 13:45 Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Sjá meira
Stökkið: „Við höfum búið saman í Vín, Aþenu, Malmö og nú Boston“ Andrea Röfn Jónasdóttir hefur verið búsett í Vínarborg, Aþenu og Malmö en á síðasta ári flutti fjölskyldan til Boston þar sem eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason spilar fótbolta í MLS deildinni. 6. mars 2022 09:00
Andrea Röfn og Arnór Ingvi eiga von á öðru barni Hjónin Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason tilkynntu í dag að þau eiga von á sínu öðru barni með því að birta sónarmyndir á Instagram. Þau eru búsett í Boston þar sem Arnór spilar fótbolta í MLS deildinni. 24. mars 2022 14:49
Hannaði tíu stíla skólínu í samstarfi við danskt skómerki „Konurnar í kringum mig veittu mér innblástur og ég hugsaði mikið til þeirra í ferlinu. Annars kom þetta svolítið til mín, ég er mjög ákveðin þegar kemur að skóm og hef sterkar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hvert smáatriði,“ segir Andrea Röfn sem hannaði sína fyrstu skólínu í samstarfi við danska skómerkið JoDis. 1. september 2020 20:00
Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi. 15. ágúst 2022 11:31
Arnór Ingvi og Andrea Röfn eignuðust stúlku „Til hamingju. Arnór Traustason eignaðist stúlku í dag.“ 21. febrúar 2019 10:30
Arnór Ingvi flaug ekki með félögum sínum til London en nær samt Chelsea leiknum Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö FF spila í kvöld við Chelsea í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. 21. febrúar 2019 13:45