Hér má heyra lagið:
Farandsirkús
Samkvæmt Reykjavíkurdætrum byrjaði lagið Sirkús á grípandi viðlagi Sölku Valsdóttur.
„Þaðan fannst okkur einhvern veginn meika sens að lagið ætti að vera um okkur sem eins konar farandsirkús. Þura Stína er línudansarinn, Steinunn er ljónatemjarinn, Salka, Dísa og Karítas eru loftfimleikadísir, Ragga er kraftajötuninn, Blær trúðurinn og Steiney sirkússtjórinn. Svo gátum við tekið okkar take á þessi hlutverk í erindunum okkar.“
Lagið var sérstaklega samið með það í huga að taka það fyrir áhorfendur á tónleikum.
„Enda vill maður bara fara lóðbeint á tónleika þegar maður heyrir það.“
Tónlistarhátíðir erlendis
Reykjavíkurdætur segja að giggum hérlendis hafi fjölgað mikið að undanförnu.
„Við erum búnar að vera gigga svolítið mikið á Íslandi, ólíkt síðustu árum og það er búið að vera svo ótrúlega gaman að ferðast um landið okkar og rappa textana fyrir fólk sem skilur hvert einasta orð,“
segir Blær og bætir við: „Annars vorum við að koma úr mini- tónleikaferðalagi í fyrradag. Við spiluðum á tónlistarhátíð í Sviss og annarri í Frakklandi, með stuttri viðkomu á Spáni. Það er líka mjög gaman að spila fyrir útlendinga, þó þau skilji ekki orðin þá skynja þau orkuna og það er magnað.
Áhorfendaskarinn í Frakklandi var svo peppaður að þau tóku okkur bara í þrefalt crowd-surf. Við vorum bara siglandi þarna ofan á þeim, rappandi og hlæjandi. Þetta var ótrúlegt moment“.
Aðspurðar hvað sé á döfinni virðist nóg um að vera.
„Það næsta sem tekur við hjá okkur er meðal annars Druslugangan, Innipúkinn og Þjóðhátíð. Það verður Íslands-frumflutningur á nýja laginu Sirkús á Þjóðhátíð ásamt alveg nýjum búningum og rugluðu ljósashowi. Þetta verður alveg magnað!“