Arnar telur að Kristall Máni verður seldur á næstu dögum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. júní 2022 23:00 Kristall Máni hefur verið frábær á leiktíðinni. Vísir/Hulda Margrét Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, telur nær öruggt að Kristall Máni Ingason verði seldur erlendis í félagaskiptaglugganum sem er nú opinn. Staðfesti Arnar þetta í viðtali við Fótbolti.net eftir að dregið var í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla, þar drógust Víkingar gegn KR. Arnar er ekki bjartsýnn að Kristall Máni klári tímabilið með Víkingum.Vísir/Hulda Margrét Félagaskiptaglugginn hér á landi opnaði í gær og lokar þann 26. júlí, það er ljóst að þjálfari Víkinga telur að Kristall Máni verður farinn af landi brott áður en 27. júlí gengur í garð. „Ég segi ekki ef heldur þegar hann fer. Logi (Tómasson) kom sterkur inn þegar hann fékk tækifærið á miðjunni í síðasta leik. Sem þjálfari viltu hafa sem flesta leikmenn,“ sagði Arnar um mögulega brottför Kristals Mána og hélt áfram. „Ég held það sé engin spurning, kæmi mér verulega á óvart ef það gerðist ekki. Held það sé engin spurning að hann sé að fara út.“ Víkingar mæta KR ekki aðeins í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en liðin mætast einnig annað kvöld á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í Bestu deild karla. Um er að ræða færðan leik og búast má við miklum látum eins og nær alltaf þegar þessi lið mætast. Leikur KR og Víkings hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Staðfesti Arnar þetta í viðtali við Fótbolti.net eftir að dregið var í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla, þar drógust Víkingar gegn KR. Arnar er ekki bjartsýnn að Kristall Máni klári tímabilið með Víkingum.Vísir/Hulda Margrét Félagaskiptaglugginn hér á landi opnaði í gær og lokar þann 26. júlí, það er ljóst að þjálfari Víkinga telur að Kristall Máni verður farinn af landi brott áður en 27. júlí gengur í garð. „Ég segi ekki ef heldur þegar hann fer. Logi (Tómasson) kom sterkur inn þegar hann fékk tækifærið á miðjunni í síðasta leik. Sem þjálfari viltu hafa sem flesta leikmenn,“ sagði Arnar um mögulega brottför Kristals Mána og hélt áfram. „Ég held það sé engin spurning, kæmi mér verulega á óvart ef það gerðist ekki. Held það sé engin spurning að hann sé að fara út.“ Víkingar mæta KR ekki aðeins í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en liðin mætast einnig annað kvöld á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í Bestu deild karla. Um er að ræða færðan leik og búast má við miklum látum eins og nær alltaf þegar þessi lið mætast. Leikur KR og Víkings hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Fleiri fréttir Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Sjá meira