Um leynda þræði milli Inga Freys, Reynis Traustasonar og Guðmundar í Brimi Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar 9. júní 2022 16:30 Stundin birti furðulegt viðtal við mig um tengsl okkar Alexanders Moshinsky í Hvíta-Rússlandi í síðasta blaði. Efnislega er þessum skrifum annars vegar ætlað að skapa þeirri fullyrðingu trúverðugt yfirbragð að Vinnslustöðin eða eigendur hennar hafi átt eða eigi About Fish á Tortóla, félag sem síðar eigi fyrirtæki sem flytji fisk til Hvíta-Rússlands, og hins vegar að Alexander Moshinsky hafi lánað eigendum Vinnslustöðvarinnar, þar með sjálfum mér, fjármuni til kaupa á hlutabréfum í Vinnslustöðinni. Stundin 27. maí 2022, Viðskipti Vinnslustöðvarinnar og Moshenskys: ,,Ég veit bara ekkert um það“ Allar þessar fullyrðingar eru kunnuglegar en rangar. Þær eru sameiginlegt hugarfóstur Guðmundar Kristjánssonar, eiganda Brims og fyrrverandi meðeiganda í Vinnslustöðinni, og lögmanns hans, Magnúsar Helga Árnasonar. Ásakanirnar eru enn jafn rakalaus þvættingur og þegar þegar þær voru fyrst bornar á borð forðum fyrir hluthafa Vinnslustöðvarinnar og á opinberum vettvangi. Lygaþvæla verður ekki sannleikur við endurtekningu og endurnýtingu í höndum „rannsóknarliðs“ á vegum Stundarinnar. Ég tók mig til í tilefni af þessu síðasta útspili Stundarinnar og lagðist í smá rannsóknarvinnu um samskipti við fjölmiðla og sé ástæðu til að birta þær hugleiðingar í fáeinum greinum. Þar legg ég meðal annars til grundvallar samtal okkar Inga Freys Vilhjálmssonar Stundarmanns og eigin niðurstöður og ályktanir sem ég hlýt að draga af því sem við mér blasir. Við Ingi Freyr áttum langt spjall í síma þar sem hann spurði. Ég svaraði og spurði hann á móti. Afar áhugavert viðtal þar sem ég benti honum á að spillingin væri mun nær okkur en í Hvíta-Rússlandi og nefndi dæmi, þó ekki þetta sem hér fer á eftir. Í lok samtalsins spurði ég Inga Frey hvort hann tæki viðtalið upp, sem hann játaði en hafði ekki getið um í upphafi sem honum bar skilyrðislaust. Ég óskaði eftir afriti af samtalinu en hann hafnaði því. Hvers vegna? Allt þolir ljós sem ég sagði en þolir allt það ljós sem Stundarmaður bar á borð? Eftir samtalið rifjaðist upp fyrir mér að Ingi Freyr þessi fór að hringja í mig á árið 2012, þá sem blaðamaður DV. Ég lagðist í ,,rannsóknarvinnu“ til rekja þráðinn, mér til skemmtunar og vonandi lesendum þessarar greinar til fróðleiks og upprifjunar á hvernig tilteknir blaðamenn vinna. Ég hef ekki upplýst áður um allar hliðar þessarar fréttar en geri það nú og heimildarmaður minn er sá sami og áður. Í ágústmánuði 2014 neyddist Reynir Traustason til að viðurkenna að hann hefði þegið 15 milljónir króna frá Guðmundi Kristjánssyni í Brimi gegn því að DV hætti að birta neikvæðar fréttir um sig en sneri sér í staðinn að því að fjalla um Vinnslustöðina! Þetta viðurkenndi Guðmundur Kristjánsson sjálfur, bæði á stjórnarfundi Vinnslustöðvarinnar og opinberlega. Til fróðleiks lesendum greinar þessarar þá er ég heimildarmaður Elliða Vignissonar sem birti færslu á heimasíðu sinni og varð til þess að þeir félagar viðurkenndu samvinnu sína. Í kjölfarið kvaðst Guðmundur ætla að stefna Elliða fyrir rógburð en stóð ekki við hótunina. Reynir viðurkenndi að hafa þegið peninga frá Guðmundi en neitaði því að milljónirnar hefðu haft áhrif á skrif DV. Ellidi.is 30. ágúst 2014, Vinnslustöð Vestmannaeyja í miðju deilda um eignarhald DV Vísir 31. ágúst 2014, Guðmundur í Brimi ætlar að stefna Elliða Vísir 31. ágúst 2014, Reynir viðurkennir að hafa fengið lán frá Guðmundi Í mig hafði hringt maður sem gjörþekkti rekstur DV og upplýst mig um þessar greiðslur. Hann upplýsti mig þá um ýmislegt fleira og hefur nú staðfest nýlega aftur í samtali við mig þetta sem ég ætla að láta eftir mér að birta enda held ég að þau atriði skipti máli fyrir opinbera umræðu um vinnubrögð blaðamanna sem tengjast Stundinni. Í þágu rannsóknar minnar og að upplýsa almenning er rétt að rekja þráðinn. DV hafði fjallað með afar neikvæðum hætti um Guðmund Kristjánsson í Brimi, uppnefnt hann í nafnlausum skoðanadálkum sem birtust í blaðinu og í einum slíkum brigslað honum um að hafa limað útgerð sundur og skilið útgerð og byggðalög á Vestfjörðum í sárum, sbr. hér: DV 11. júní 2010, Vinalaus með áróður Síðar hafði svipaður nafnlaus pistill DV breytt uppnefni Guðmundar úr „vinalausum“ í „skuldlausan“ í kjölfar þess að hann fékk afskrifaðar 20 milljarða króna í Landsbankanum. DV 8. ágúst 2011, Guðmundur skuldlausi Ári síðar, 2012, kvað við nýjan tón í DV. Þá höfðu milljónir króna skipt um eigendur að tjaldabaki og allt orðið gott og fagurt í samskiptum Reynis Traustasonar og Guðmundar Kristjánssonar. Í sama tölublaði DV voru birtar tvær fréttir af Guðmundi þar sem hann skammar Moggann annars vegar fyrir að birta ranga frétt um hann og sömuleiðis er fjallað afskaplega vinsamlega um „baráttujaxlinn“ Guðmund í Brimi og hugmynd hans um að DNA-greina makríl DV mærir svo Guðmund fyrir hafa yfir sér „blæ kímni og visku sem þykir tilbreyting frá hörkunni og áróðrinum sem þykir einkenna LÍÚ“ (!). DV 25. júlí 2012, Skammar Moggann og DNA Guðmundar: Í kjölfarið fóru að birtast greinar og leiðarar, skrifaðir af Inga Frey, þar sem annars vegar er fjallað um mig sem einn af kengskuldsettum eigandum Vinnslustöðvarinnar og hins vegar fabúlerað með það í leiðara að útgerðarfélög beiti þeirri aðferð að láta hagnað af viðskiptum með fisk myndast erlendis til að komast fram hjá gjaldeyrishöftum og að skila réttmætum tekjum inn í þjóðarbúið. Í því sambandi er nefnt að Vinnslustöðin eigi dótturfélagið About Fish, skráð í Þýskalandi, látið í skína að þannig séu hin vafasömu viðskipti stunduð. Meira um það síðar. DV 2. júlí 2012, Við verðum bara að standa í skilum DV 9. ágúst 2013, Eigandi útgerðar kengskuldsettur og stóra leyndarmálið Svo vill til að ég fékk nánari upplýsingar um fjármálaleg samskipti Guðmundar í Brimi og Reynis DV-ritstjóra frá heimildarmanni úr herbúðum DV. Sá gaf sig fram árið 2014 og hefur nú staðfest á nýjan leik að þræðirnir hafi legið sem hér segir: DV gaf út þrjá reikninga, hvern um sig að fjárhæð 5 milljónir króna til Brims hf., nú Útgerðarfélags Reykjavíkur. Reikningarnir voru sendir til Brims og færðar þar til bókar sem frádráttarbær kostnaður. Í kjölfarið gaf DV út afsláttarreikning, sömu fjárhæðar. Þar með voru engar tekjur af viðskiptunum til í bókhaldi DV Stjórnendur DV rifu líklega afsláttarreikningana og afhentu þá ekki til Brims og þar stóð því kostnaðurinn óhaggaður. Guðmundur Kristjánsson greiddi reikningana beint inn á tékkareikning Reynis Traustasonar sem svo notaði þessar 15 milljónir króna til hlutafjáraukningar í DV í valdabaráttu sem átti sér stað þar í félaginu. Framkvæmdastjóri DV frá 2012 til 2014 var Jón Trausti Reynisson núverandi aðaleigandi Stundarinnar og sonur Reynis Traustasonar. Ingi Freyr Vilhjálmsson þarf því ekki að fara yfir Stundarlækinn eftir vatni. Í stað þess að fara með fleipur og þvætting um meint tengsl mín og Vinnslustöðvarinnar við Hvíta-Rússland þarf hann ekki annað en skyggnast um í eigin ranni til að fá þetta líka fína efni í framhaldsseríu í Stundinni um skjalafals, bókhaldssvik, fjárdrátt og spillingu sem tengist DV og Brimi, með sögulegum þræði beint í eigendahóp Stundarinnar sjálfrar. Veruleikinn getur verið svo yndislega ótrúlegur því nú er Ingi Freyr orðinn aðstoðarrannsakandi Helga Seljan, „rannsóknarritstjóra“ Stundarinnar, – undir stjórn Jóns Trausta Reynissonar! Neðamál: Stundin hafnaði því að birta þessa grein mína á vef sínum.Ég óskaði eftir að greinin væri birt opin og öllum aðgengileg svo lesendur Stundarinnar hefðu óheftan aðgang að viðbrögðum mínum. Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Hver ber ábyrgð á Karlanetinu? Kjartan Ragnarsson,Védísi Drótt Cortez Skoðun Gleðibankinn er tómur Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun Fokk jú Austurland Kristján Ingimarsson Skoðun Ísland úr Eurovision 2026 Sædís Ósk Arnbjargardóttir Skoðun Ný þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna Arnór Sigurjónsson Skoðun Er líf karlmanns 75% af virði lífi konu? Jón Pétur Zimsen Skoðun Biðsalur dauðans eða aftökustaður á heiði? Davíð Bergmann Skoðun Þrjú tonn af sandi Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun ,,Friðardúfan“ Pútín Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland úr Eurovision 2026 Sædís Ósk Arnbjargardóttir skrifar Skoðun Þrjú tonn af sandi Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland úr Eurovision 2026 Sædís Ósk Arnbjargardóttir skrifar Skoðun Fokk jú Austurland Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Ný þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Gleðibankinn er tómur Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á Karlanetinu? Kjartan Ragnarsson,Védísi Drótt Cortez skrifar Skoðun Biðsalur dauðans eða aftökustaður á heiði? Davíð Bergmann skrifar Skoðun ,,Friðardúfan“ Pútín Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Nýsköpunarátak fyrir framtíð Íslands Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Það sem við skuldum hvort öðru Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Fjárfestum í mannréttindafræðslu Vala Karen Viðarsdóttir,Pétur Hjörvar Þorkelsson skrifar Skoðun Sakavottorðið og ég Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stór orð – litlar efndir Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattlagning mótorhjóla: Órökstudd gjaldtaka sem skapar ranglæti og hvetur til undanskota Gunnlaugur Karlsson skrifar Skoðun Netið er ekki öruggt Sunna Elvira Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á villigötum Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valkvæð tilvitnun í Feneyjanefndina Hjörtur J Guðmundsson skrifar Skoðun Mótorhjólin úti – Fjórhjólin inni Njáll Gunnlaugsson skrifar Skoðun Læknar eru lífsbjörg: Tryggjum sérnám þeirra Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Fjárlögin 2026: Hvert stefnum við? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Framtíðarsýn Anton Már Gylfason skrifar Skoðun Að deyja með reisn: hver ræður því hvað það þýðir? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Blönduð byggð við Sundin - í boði nýrrar samgönguáætlunar Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Tómstundamenntun sem meðferðarúrræði Brynja Dögg Árnadóttir skrifar Skoðun Partíið er búið – allir þurfa að fóta sig í breyttum heimi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun „Stuttflutt“ Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Landssamband smábátaeigenda 40 ára – hverju hefur baráttan skilað? Kjartan Páll Sveinsson,Örn Pálsson skrifar Skoðun Frá séreignarstefnu til fjárfestingarmarkaðar: hvað fór úrskeiðis? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Skoðun Skattlagning mótorhjóla: Órökstudd gjaldtaka sem skapar ranglæti og hvetur til undanskota Gunnlaugur Karlsson skrifar
Skoðun Blönduð byggð við Sundin - í boði nýrrar samgönguáætlunar Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Landssamband smábátaeigenda 40 ára – hverju hefur baráttan skilað? Kjartan Páll Sveinsson,Örn Pálsson skrifar
Skoðun Frá séreignarstefnu til fjárfestingarmarkaðar: hvað fór úrskeiðis? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun