Bæjarfulltrúar valdi valdinu Guðmundur Oddgeirsson skrifar 12. maí 2022 15:00 Kjörtímabilið 2014 til 2018 var B-listi Framfarasinna með fjóra af sjö bæjarfulltrúum og þar með hreinan meirihluta, D-listi Sjálfstæðismanna með tvo og Ö-listi Félagshyggjufólks með einn. Fljótlega kom í ljós að Sveinn Steinarsson, oddviti B-listans, var maður samstarfs og bauð minnihlutanum upp á víðtæka samvinnu. Tvískiptir fundir voru haldnir fyrir bæjarstjórnarfundi, meirihlutafundir og minnihluta lögðust af og þess í stað undirbjuggu allir bæjarfulltrúar næsta bæjarstjórnarfund. Öll sjónarmið komust að og að endingu varð til dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Bæjarfulltrúar voru ekki alltaf sammála á undirbúningsfundinum, tekist var á fram að bæjarstjórnarfundi og bæjarstjórnarfulltrúar greiddu atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni. Sveinn forseti bæjarstjórnar og Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri héldu spilunum ekki þétt að sér og upplýstu alla bæjarfulltrúa um það sem var í gangi hverju sinni. Þegar kom að því að skipa í nefndir, t.d. á samstarfsvettvangi sveitarfélaga, var sá/sú bæjarfulltrúi valin(n) í nefndina eftir þekkingu og áhuga á málefninu, óháð hvar í flokki viðkomandi var. Gæfuríkt samstarf Þetta frábæra samstarf árin 2014-2018 var gæfuríkt fyrir samfélagið og á einn stærsta þátt í að svo vel gekk að rífa Ölfus, í þessu sambandi Þorlákshöfn, upp úr eftirköstum hrunsins. Horft var fram á veginn og grunnur lagður að framförunum dagsins: laxeldislóðunum, uppbyggingu nýrra íbúðasvæða og þéttingu byggðar í Búðarhverfinu. Það er sorglegt að enn, fjórum árum eftir umrætt kjörtímabil, sitja sumir á óbyggðum lóðum eins og ormar á gulli og tefja fyrir uppbyggingu Búðahverfisins. Allir í Þorlákshöfn vita hverju samstaðan skilaði varðandi höfnina, hún komst rækilega á blað og hægt var að sýna fram á notagildi hennar sem vöruhafnar. Samstaðan skilaði sér beint til ráðuneyta samgöngu- og fjármála með stuðningi ráðherra málaflokkanna og Alþingis. Þetta er reynsla mín af því að vera í minnihluta í sveitarstjórn 2014 til 2018. Fyrir kosningarnar 2018 slógu framboðin B og Ö saman í kosningabandalagið O-listann. Ástæðan var gott samstarf á kjörtímabilinu og viljinn til að halda því áfram. Niðurstaðan varð önnur en vonast var eftir, D-listinn fékk hreinan meirihluta, fjóra bæjarfulltrúa af sjö. Umskipti til hins verra Það sem tók við var ólíkt því sem við höfðum vanist. Ekkert samstarf milli meirihluta og minnihluta var í boði, meirihlutinn tók það m.a.s. fram í upphafi. Til að bæta gráu ofan á svart var síðan ráðinn bæjarstjóri í sama stíl. Við tók stjórnunarstíll sem ég hafði bara heyrt um af afspurn. Mikil umskipti urðu til hins verra í samskiptum við vinasveitarfélögin og í samstarfssamlögum og nefndum. Sjálfstæðismenn vildu helst leggja allt samstarf niður, töluðu um mikinn kostnað án allra greininga og sögðu ekkert um hvað þeir vildu að tæki við. Þeim fannst og finnst ekkert þess koma að taka þátt í SASS, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, bæjarstjórinn hreykir sér af því að mæta ekki á þing SASS undir glotti forseta bæjarstjórnar. Eftir höfðinu dansa limirnir og þegar fulltrúar meirihlutans mættu á SASS þingið haustið 2019, sem stóð yfir í tvo daga, sýndu þeir fundinum fullkomna vanvirðingu. Einn fulltrúinn sat hluta þingtímans og hinir tveir gátu ekki mætt seinni daginn vegna eftirkasta gleðskapar kvöldins áður og urðu samfélagi okkar til skammar. Forseta bæjarstjórnar var send ábending í tölvupósti um hvað hafði átt sér stað. Einleikur með leyfi forseta bæjarstjórnar Bæjarstjórinn fer sínu fram með leyfi forseta bæjarstjórnar, vinaráðningar eru algengar og stjórnleysi ríkir í starfsmannamálum. Hroki einkennir málflutning hans á bæjarstjórnarfundum í garð bæjarfulltrúa minnihlutans. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var spurt var um nokkra liði í ársreikningi sveitarfélagsins en í stað þess að svara skilmerkilega talaði hann niður til fyrirspyrjanda, fannst ekki taka því að svara um lágar tölur. Hann gat svo ekki svarað með skýrum hætti hvað lægi á bak við tölurnar. Vegna áforma um að skipa í sérnefndir um stefnumótun, m.a. í málefnum aldraðra, korteri fyrir kosningar var bent á að umboð sérnefnda félli niður frá og með kjördegi, en þá lýkur kjörtímabilinu samkvæmt lögum. Fastanefndir starfa áfram eftir kjördag þar til ný bæjarstjórn tekur við og skipar í þær. Þessari ábendingu hafnaði bæjarstjórinn sem hinni mestu fyrru, hann fór mikinn í ræðustól til að reka ábendinguna ofan í bæjarfulltrúann, vitnandi í lög sem hann greinilega skilur ekki. Eftir bæjarstjórnarfundinn var bæjarstjóranum og öðrum bæjarfulltrúum sendur útdráttur úr lögum þar sem sést svart á hvítu hvenær kjörtímabili lýkur, hvernig bæjarstjórn og fastanefndir skuli starfa þar til ný bæjarstjórn tekur við 15 dögum eftir kjördag. Áliti því sem var haldið fram af bæjarfulltrúanum var svo staðfest af lögfróðum. Síðustu fjögur ár undir stjórn Sjálfstæðisflokksins hafa verið sérkennileg. Ég ætla að nefna eitt dæmi í viðbót af stjórnunarháttum þeirra. Það er um einkennilega framlagningu samnings sem bæjarstjórinn gerði við fyrirtæki um að afhenda því miðbæjarsvæðið til uppbyggingar og hefur þessi gjörningur verið sveiptur dýrðaljóma í kosningabaráttu D-listans. Þennan samning gerði bæjarstjórinn án undangenginnar umræðu um miðbæjarsvæðið, án aðkomu bæjarfulltrúa D-listans og að sjálfsögðu án vitundar bæjarfulltrúa minnilhlutans. Samninginn um þetta stóra mál setti hann á dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar kjörtímabilsins, tveimur sólarhringum fyrir fund, til samþykktar. Bæjarstjórinn fullyrti síðan í umræðum um samninginn að ALLIR bæjarfulltrúar hafi fengið að sjá samninginn á sama tíma. Hver trúir þessari vitleysu? Eigum við að trúa því að bæjarfulltrúar D-listans hafi ekkert um það að segja hvað verði á dagskrá bæjarstjórnarfunda? Eigum við að trúa því að forseti bæjarstjórnar hafi ekki verið upplýstur um þær þreifingar sem voru um miðbæjarsvæðið og unnið væri að gerð samnings? Eigum við að trúa því að oddviti og bæjarfulltrúar D-listans hafi gefið frá sér allt vald og vit til bæjarstjórans? Nei, ég trúi því ekki að hér hafi verið sagt rétt frá. Kjósandi góður, ég tel það farsælast fyrir samfélag okkar að við ástundum samvinnu, innan sem utan sveitarfélagsins og að bæjarfulltrúar taki kjöri sínu af alvöru og ábyrgð og muni að það eru bæjarfulltrúarnir sem eiga að fara með valdið. Höfundur er bæjarfulltrúi O-listans í Ölfusi og nú í 10. sæti H-listans, Íbúalistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ölfus Skoðun: Kosningar 2022 Sveitarstjórnarkosningar 2022 Mest lesið „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun