Hjalteyrarbörnin fá greiddar sanngirnisbætur frá ríkinu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 26. apríl 2022 13:00 Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að fólk sem dvaldi á áttunda áratug síðustu aldar á barnaheimili á Hjalteyri og var beitt gríðarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi af hjónum sem sáu um heimilið fái sanngirnisbætur. Vísir Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldist á barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar sanngirnisbætur. Fram hefur komið að hjón sem höfðu umsjón með börnunum beittu þau gríðarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá verður skipuð rannsóknarnefnd um Vöggustofuna í Reykjavík.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra skipaði í desember starfshóp sem ætlað var að rannsaka starfsemi á barnaheimilinu í Richardshúsi á Hjalteyri, sem starfrækt var á árunum 1972-1979. Það var gert á grunni fjölmiðlaumfjöllunar þar sem kom fram að börnin höfðu verið beitt gríðarlegu líkamlegu og andlegu ofbeldi af hjónum sem ráku heimilið. Niðurstaða í málinu var kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag. „Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að eigi þau að fara í dýpri og nánari rannsókn á málinu þá þarf að fara í lagabreytingar eins og fordæmi eru fyrir. En þau telja að það liggi þegar fyrir nægar upplýsingar og gögn sem styðja við að það sé eðlilegt að þessu fólki verði greiddar út sanngirnisbætur. Þar með hefur þetta fólk tækifæri til að koma á framfæri sínum sjónarmiðum um sína stöðu við þá aðila sem munu höndla þau mál á sambærilegan máta og fordæmi eru fyrir eins og í Breiðuvíkurmálinu og málefnum fatlaðra einstaklinga. Skipulagið á þessu verður líkt og vistheimilanefndin starfaði. Ef óskað verður eftir að ég hitti fólkið þá verð ég að sjálfsögðu við því. Þetta er ánægjuleg niðurstaða og vonandi lyktir sem fólkið getur verið sátt við. Það eru síðan hugmyndir um að gera lagabreytingar sem um þetta gildi þannig að þær heimildir sem hefur þurft að sækja fyrir hvert einstakt mál að það verði almennt lagaákvæði sem um þetta gildir. En það væri ekki fyrr en á næsta þingi sem við gætum staðið að slíkum lagabreytingum,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Borginni heimilt að rannsaka vöggustofurnar Þá var ákveðið að ríkið taki þátt í rannsókn á Vöggustofum í Reykjavík. „Reykjavíkurborg hefur einnig óskað eftir lagaheimild til að gera sérstaka rannsókn á vöggustofum sem voru starfræktar í Reykjavík á síðustu öld og við munum á grundvelli þess fara í almenna löggjöf sem forsætisráðherra hefur lagt fram. Þar mun rannsókn fara fram án þess að nú þegar liggi fyrir hver sé bótaskyldur í því máli. Ef til kæmi að greiða bætur þar. Þetta var starfsemi á vegum Rekjavíkurborgar en ekki ríkisins,“ segir Jón Gunnarsson.
Barnaheimilið á Hjalteyri Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30 Tóku barn úr vistun vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna: Létu Garðabæ vita Garðabær fékk ítrekað ábendingar og eða kvartanir vegna hjóna sem önnuðust fjölda barna í bænum að sögn foreldra sem voru með barn í leikskóla hjá þeim. Foreldrarnir segjast hafa ákveðið að taka barnið sitt úr skólanum vegna grunsamlegrar hegðunar þeirra. Hjónin sem hafa verið ásökuð um ofbeldi og pyntingar gagnvart börnum störfuðu í 17 ár í Garðabæ. Maður sem var hjá þeim á Hjalteyri segist hafa reynt að láta Garðabæ og önnur yfirvöld vita af ofbeldinu sem þau beittu þar. 5. desember 2021 18:30 Tíu haft samband vegna Hjalteyrarhjónanna: Gættu að minnsta kosti 170 barna í Garðabæ Hjónin sem sökuð hafa verið um alvarlegt ofbeldi gagnvart börnum á Hjalteyri á síðustu öld að minnsta kosti á annað hundrað barna í Garðabæ á sautján ára tímabili á þessari öld. Tíu einstaklingar hafa þegar óskað eftir upplýsingum eða samtölum vegna starfa hjónanna í bænum. 3. desember 2021 19:00 Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi. 23. nóvember 2021 19:31 „Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32 Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30
Tóku barn úr vistun vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna: Létu Garðabæ vita Garðabær fékk ítrekað ábendingar og eða kvartanir vegna hjóna sem önnuðust fjölda barna í bænum að sögn foreldra sem voru með barn í leikskóla hjá þeim. Foreldrarnir segjast hafa ákveðið að taka barnið sitt úr skólanum vegna grunsamlegrar hegðunar þeirra. Hjónin sem hafa verið ásökuð um ofbeldi og pyntingar gagnvart börnum störfuðu í 17 ár í Garðabæ. Maður sem var hjá þeim á Hjalteyri segist hafa reynt að láta Garðabæ og önnur yfirvöld vita af ofbeldinu sem þau beittu þar. 5. desember 2021 18:30
Tíu haft samband vegna Hjalteyrarhjónanna: Gættu að minnsta kosti 170 barna í Garðabæ Hjónin sem sökuð hafa verið um alvarlegt ofbeldi gagnvart börnum á Hjalteyri á síðustu öld að minnsta kosti á annað hundrað barna í Garðabæ á sautján ára tímabili á þessari öld. Tíu einstaklingar hafa þegar óskað eftir upplýsingum eða samtölum vegna starfa hjónanna í bænum. 3. desember 2021 19:00
Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi. 23. nóvember 2021 19:31
„Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56