Fínasta veður á landinu en stöku él norðan og austantil Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2022 07:34 Frost verður á bilinu núll til sjö stig en sums staðar frostlaust suðvestantil yfir daginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fínasta veðri á landinu í dag með norðlægri eða breytilegri átt og þremur til átta metrum á sekúndu. Skýjað verður með köflum en stöku él norðan- og austanlands.
Frost verður á bilinu null til sjö stig en sums staðar frostlaust suðvestantil yfir daginn. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að spá morgundagsins sé á heldur meira flökti. Þá geri sumar spár ráð fyrir að úrkomubakki sem verði skammt vestur af landinu, nái inn á land og gæti því snjóað staðbundið á Faxaflóasvæðinu sem og á Breiðafirði. Aðrar spár geri hins vegar ráð fyrir að bakkinn nái nánast ekkert inn á land. „Ágætt er að hafa í huga að þótt þetta misræmi sé í spánum þá skeikar þetta mjög litlu þegar haft er í huga að veðurlíkönin sem notuð eru við útreikninga spáa eru býsna gróf og háupplausnarlíkönin nota niðurstöður þeirra við sína útreikninga, svo að 20-30 km færsla á úrkomubökkum er í raun alger minniháttar tilfærsla, en þegar úrkomubakkarnir eru eins nálægt landi og raun ber, þá getur það haft mikil staðbundin áhrif hjá okkur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt, 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 suðvestan og vestanlands. Skýjað með köflum en líkur á dálítilli úrkomu um landið suðvestanvert. Frost 0 til 7 stig en frostlaust við suðvesturströndina. Á sunnudag: Austlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað með köflum eða bjartviðri en þykknar upp við suðurströndina um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 8 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austan og norðaustan 5-10, en 10-15 m/s syðst. Bjartviðri um landið vestanvert annars skýjað og dálítil úrkoma við suður- og suðausturströndina. Allvíða frostlaust syðst, annars 0 til 7 stiga frost. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir áframhaldandi austlæga átt, allhvöss syðst, en annars mun hægari. Dálítil él syðst, annars yfirleitt þurrt og bjart. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira