Hringormar fundust spriklandi í bleyju, ælu og við endaþarmsop eftir fiskát Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2022 15:05 Lirfa hringormsins Pseudoterranova decipiens sem kona hóstaði upp í kok fimm dögum eftir að hafa borðað lítið eldaðan steinbít. Karl Skírnisson Átján hringormslirfur voru sendar til rannsóknar hjá Tilraunastöðinni að Keldum á tímabilinu 2004 til 2020. Fjórtán þeirra höfðu um tíma lifað í fólki og voru lifandi þegar þær fundust, þrjár fundust í lifandi fiski og ein var dauð. Smituðu einstaklingarnir voru allt frá því að vera ungbörn upp í fólk á níræðisaldri.
Í einu tilfellanna fannst lirfa af tegundinni Anisakis simplex spriklandi í bleyju barns sem talið var að hafi komið úr vanelduðum fiski á leikskóla. Í öðru tilviki fannst dauð sambærileg lirfa í soðinni ýsu sem barn spýtti út úr sér. Fjallað er um þetta í nýrri fræðigrein Karl Skírnissonar dýrafræðings sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Vitað er til þess að þrettán Pseudoterranova decipiens-lirfur hafi fundist á Íslandi á umræddu tímabili sem höfðu lifað í fólki. Í ellefu skipti fundust þær í munni fólks en í einu tilfelli fann móðir spriklandi lirfu í ælu barns. Auk þess hefur hringormur sést hreyfa sig við endaþarmsop við þrif eftir salernisferð. Allt að níu daga í líkama fólksins Lengd lirfanna var 30 til 47 millimetrar og voru þær taldar hafa lifað allt frá einum upp í níu daga í fólkinu. „Þorskur var oftast nefndur sem uppspretta lirfanna (5 tilfelli af 14), tvær manneskjur töldu lirfurnar komnar úr steinbít, einn nefndi báðar þessar tegundir. Sushi eða skarkoli voru álitin uppsprettan í einu tilviki, einn smitaðist í sushi-veislu. Uppruninn var óþekktur í fjórum tilvikum. Oftast töldu menn sig hafa smitast í heimahúsi, þrír álitu sig hafa smitast á veitingastað, sama barn smitaðist tvisvar á barnaheimili og hafnarstarfsmaður smitaðist við að borða hráan fisk,“ segir í fræðigreininni. Að sögn Karls eru fjöldi fiskitegunda millihýslar hringorma sem lifa fullorðnir í sjávarspendýrum, til að mynda selum og tannhvölum. Þráðormarnir geti lifað um hríð í fólki án þess þó að ná nokkru sinni fullum þroska. Smitast fólk við það að fá ofan í sig lifandi þriðja stigs lirfur með hráum eða vanelduðum sjávarafurðum. Karl Skírnisson Stundum fjarlægðar með skurðaðgerð „Mun algengara er að lirfur Anisakis bori sig út úr meltingarveginum heldur en Pseudoterranova-lirfur og fari í framhaldinu á flakk í kviðarholi fólks. Lirfuflakk í kviðarholi getur valdið alvarlegum einkennum, svo sem stingandi verk, flökurleika, uppköstum og niðurgangi. Hringormslifur sem ekki bora sig út úr meltingarveginum heldur taka sér bólfestu í slímhúð magans geta líka valdið sársauka sem lýsir sér allt frá því að vera kitlandi fiðringur upp í að vera sár magaverkur, uppsölutilfinning, þrálátur hósti og niðurgangur.“ Að sögn Karls eru Anisakis-tegundir hringorma stundum fjarlægðar úr kviðarholi með skurðaðgerð. Pseudoterranova-lirfur sem hafa fest sig í magaslímhúð sleppa þar yfirleitt takinu eftir ákveðinn tíma og skila sér þá annað hvort út úr líkamanum með saur eða slöngvast upp vélindað upp í kok og eru þá gjarnan gómaðar þar af þeim sem hýst hafði lirfuna. Varasamt að borða hráan fisk ef ekki er farið varlega Misjafnt var hvort og þá hversu mikið fólk fann fyrir smiti af völdum Pseudoterranova decipiens-lirfanna. Algengast var að fólk nefndi ógleði, sumir nefndu að hafa stundum kúgast meðan að lirfan hélt sig í maganum, aðrir köstuðu ítrekað upp. „Einn einstaklingur nefndi sultartilfinningu meðan að hann hýsti orminn, sá sami fann fyrir sárum verk efst í maganum og hann kúgaðist og ældi dögum saman áður en lirfan gekk loks upp í kok en þá hurfu einkennin. Eftir að lirfan var horfinn út úr líkamanum kvörtuðu sumir yfir því að hafa tímabundið fundið fyrir óþægindum í hálsi, einn nefndi kitl í koki, annar kvaðst hafa fundið fyrir ertingu í hálsi í tólf daga eftir að ormurinn fannst uppi í kokinu. Nokkrir aðspurðra kváðust ekki hafa fundið fyrir neinum einkennum meðan ormurinn var í maga. Eftir að lirfan hafði verið send í greiningu fundu sumir fyrir ógeðstilfinningu og velgju við tilhugsunina um það hvað þeir höfðu gengið í gegnum,“ segir í greininni. Karl bendir á að síðustu ár og áratugi hafi neysla á hráu eða lítt hituðu sjávarfangi færst í vöxt og hér á landi. Af því geti stafað hætta og brýnt að fiskur sem notaður sé í tilbúna fiskrétti hafi verið vandlega ormahreinsaður. Öruggari leið er svo að frysta hráefnið það lengi að lirfur í því drepist. Einnig er hægt að fylgjast með því hvort fiskstykki hafi náð tilsettum lágmarks kjarnhita með því að stinga steikarhitamæli í þykkasta hluta þeirra.
Dýr Sjávarútvegur Heilbrigðismál Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Sjá meira