Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Venjulega korter í sjö til sjö en ef ég er í hlaupagírnum, sem ég er ekki þessa dagana, þá vakna ég að minnsta kosti klukkutíma fyrr. Það er nauðsynlegt að ná hlaupunum inn í upphafi dags, annars er eins víst að ekkert verði af þeim.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Það fyrsta sem ég geri er að renna snöggt yfir fréttir dagsins á netmiðlunum. Skoða þær með „Kauphallargleraugunum“, hvort að það er eitthvað að gerast sem við í Kauphöllinni gætum þurft að bregðast við.
Léttar líkamsæfingar á baðgólfinu taka svo við. Þegar sólargangur er langur byrja ég stundum daginn á morgungöngu, nú eða hlaupum ef ég er í þeim gírnum. Mér finnst indælt að viðra mig og stilla mig af í upphafi dags. Ég kem þá vel stemmdur inn í daginn.“
Hefur þú hugleitt að byrja á Facebook?
Ég held að það séu fyrst og fremst aðrir sem hafa hugleitt það fyrir mig, án undantekningar af góðum hug. Í þessari veröld upplýsingaofgnóttar finnst mér bara svo dásamlegt að vera ekki á Facebook. Það sem vakir fyrir mér er að minnka áreiti. Áreitið í dagsins önn er svo mikið að ég leitast við að minnka það frekar en auka.
Vissulega missir maður stundum af einu og öðru og kemur öðru hverju af fjöllum, en það gerir oftast ekkert til. Ef mikið liggur við þá hefur fólk samband eftir öðrum leiðum. Allra skemmtilegast finnst mér að fá fréttir af fólki þegar maður hittir það í raunheimum.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Verkefnin á borðinu eru allmörg en líkast til þau mikilvægustu og skemmtilegustu lúta að nýskráningum og að breikka vöruúrvalið hjá okkur í Kauphöllinni.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Í lok dags skrifa ég verkefnalista sem ég vinn eftir næsta dag. Ég er líka með lista yfir forgangsverkefni sem nær til lengri tíma, næstu viku og vikna.
Umhverfið sem ég vinn í er mjög kvikt og oft koma upp áríðandi mál sem riðla aðeins skipulaginu en listarnir hjálpa mér að halda mínu striki.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Það er svolítið breytilegt en oftast í kringum hálf tólf.“