„Rússarnir eru að sameina NATO“ Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2022 14:15 Rússneskir hermenn á ferð á Krímskaga. AP Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er staddur í Berlín þar sem hann hitti í dag utanríkisráðherra Þýskalands, Frakklands og Bretlands. Fyrr í dag ræddi hann við Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, í Kænugarði. Hann mun halda ræðu í dag og svo í kjölfarið ferðast til Genf þar sem hann mun funda með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, á morgun. AP fréttaveitan segir að í ræðu sinni muni Blinken tala um mikilvægi þess að bandamenn Úkraínu standi sameinaðir gegn yfirgangi Rússa og brotum þeirra á alþjóðlegum reglum og venjum. Sagðir undirbúa aðra innrás Rússar hafa komið minnst hundrað þúsund hermönnum, skriðdrekum og öðrum búnaði við landamæri Úkraínu. Úkraína er nánast umkringd eftir að rússneskir hermenn voru sendir til Hvíta-Rússlands en Úkraínumenn óttast að Rússar ætli sér að gera aðra innrás í landið. Sjá einnig: Biden telur Pútín hyggja á innrás og segir hann munu gjalda það dýru verði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagðist í gærkvöldi eiga von á því að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði sér að gera einhvers konar innrás í Úkraínu á næstunni. Hann sagði einnig að Rússar myndu gjalda þess dýr verði. Yfirvöld í Rússlandi segjast ekki ætla sér að gera innrás í Úkraínu. Í dag sökuðu ráðamenn þar Vesturveldin svokölluðu um að ætla að „ögra“ Rússum og dulbúa raunverulegar ætlanir sínar varðandi Úkraínu með því að ýta undir áhyggjur af mögulegri innrás Rússa. AP fréttaveitan hefur eftir Maríu Sakaróvu, talskonu utanríkisráðuneytis Rússlands, að yfirlýsingar um yfirvofandi árásir á Úkraínu væru einhvers konar yfirvarp fyrir „þeirra eigin umfangsmiklu ögranir, meðal annars af hernaðarlegu tagi“. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands.AP/Utanríkisráðuneyti Rússlands Þá hefur Tass fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, eftir Dmitry Peskov, talsmanni Pútíns, að „ógnanir“ Bandaríkjanna í garð Rússlands gætu leitt til þess að Úkraínumenn reyni að ná aftur tökum á svæði aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Rússar gerðu innrás í Úkraínu árið 2014 og innlimaði Úkraínuskaga. Þá hafa Rússar stutt við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins meðal annars með vopnum og hermönnum. Ráðamenn í Bandaríkjunum sögðust fyrir skömmu hafa komist á snoðir um að Rússar hefðu sent sérstaka sveit hermanna til austurhluta Úkraínu þar sem þeir áttu mögulega að falsa tilefni til inngrips Rússa. Ríkisstjórn Úkraínu þvertekur fyrir að til standi að reyna að reka aðskilnaðarsinnana á brott. Vilja meina Úkraínu aðgang að NATO Þessa miklu spennu á svæðinu má rekja til þess að Rússar sendu áðurnefnda hermenn að landamærum Úkraínu. Samhliða því krafðist ríkisstjórn Pútíns þess að Úkraínu yrði aldrei hleypt inn í Atlantshafsbandalagið og að bandalagið fjarlægði allar hersveitir og vopn úr Austur-Evrópu. Nánar tiltekið yrðu hermenn fjarlægðir úr þeim löndum sem gengu til liðs við NATO eftir árið 1997. Þar á meðal eru Pólland og Eystrasaltsríkin, sem hafa varað við því að Rússar vilji auka umsvif sín á svæðinu og draga úr fullveldi þeirra. Pólland, Ungverjaland og Tékkland gengu til liðs við Atlantshafsbandalagið árið 1999. Árið 2004 gerðu Búlgaría, Rúmenía og Slóvakía það einnig auk Eystrasaltsríkjanna Eistlands, Lettlands og Litháen. Í kjölfarið af því gengu Albanía, Króatía, Svartfjallaland og Norður Makedónía einnig í NATO. Ætla ekki að verða við kröfum Rússa Forsvarsmenn NATO segja að ekki komi til greina að verða við kröfum Rússa. Sú ákvörðun að ganga til liðs við NATO sé á höndum íbúa hvers ríkis fyrir sig og svo aðildarríkja NATO sem þurfa að samþykkja umsóknir. Þó Úkraínumenn hafi lýst yfir áhuga á því að ganga til liðs við NATO eru litlar sem engar líkur á því að það geti gerst í náinni framtíð. Meðal annars vegna yfirstandandi hernámi Rússa í Úkraínu og átökunum við aðskilnaðarsinna sem Rússar styðja. Peskov sagði einnig í dag að þó Úkraínu yrði ekki hleypt inn í varnarsamstarfið á næstu árum væri það engin trygging fyrir því að það gerðist ekki seinna meir. Þar sem Úkraína er ekki í NATO eru ríki bandalagsins ekki skuldbundin til að koma ríkinu til varnar. Hins vegar hafa ríki eins og Bretland verið að senda vopn til Úkraínumanna á undanförnum dögum. Þá var tilkynnt í dag að Bandaríkjamenn hafa gefið Eystrasaltsríkjunum heimild til að flytja vopn sem Bandaríkin gáfu þeim til Úkraínu. Gervihnattarmynd af rússneskri herdeild nærri landamærum Úkraínu.AP/Maxar Technologies Spennan hafi sameinað NATO á ný Hernaðaruppbygging Rússa á landamærum Úkraínu gæti þó verið að hafa öfug áhrif, miðað við það sem Rússar vilja. Spennan er að gefa NATO aukin kraft í kjölfar brottfararinnar frá Afganistan í fyrra. Þá hefur ástandið leitt til þess að fleiri ríki í Austur-Evrópu vilja styrkja varnir sína og hafa leitað til Vesturveldanna. Til viðbótar við það eru umræður um mögulega aðild að NATO aftur farnar að heyrast í hinum hlutlausu ríkjum Finnlandi og Svíþjóð. Svíar tilkynntu til að mynda í vikunni að viðbúnaður hefði verið aukinn verulega á Gotlandi. Reuters vísar til þess að Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti nýverið að hann væri tilbúinn til að senda hermenn til Rúmeníu. Forseti Rúmeníu tók vel í það boð og segir fréttaveitan að útlit sé fyrir að NATO-ríki muni senda fleiri hermenn til Eystrasaltsríkjanna á næstunni. Frá því að Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014 hefur NATO farið í gegnum umfangsmikla nútímavæðingu á herafla og hafa útgjöld til varnarmála aukist víða. Árið 2014 vörðu einungis þrjú aðildarríki NATO minnst tveimur prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Í dag eru þau tíu. „Það er engin spurning. Rússarnir eru að sameina NATO utan um sameiginlegt markmið,“ sagði einn viðmælandi Reuters, sem var háttsettur embættismaður innan bandalagsins á árum áður.
Úkraína Rússland Bandaríkin NATO Hernaður Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Erlent Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Erlent Fleiri fréttir Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Sjá meira