Enski boltinn

Klopp segir það óhjákvæmilegt að Gerrard taki við Liverpool í framtíðinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jürgen Klopp segir það klárt mál að Steven Gerrard taki við Liverpool í framtíðinni.
Jürgen Klopp segir það klárt mál að Steven Gerrard taki við Liverpool í framtíðinni. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images

Liverpool goðsögnin Steven Gerrard snýr aftur á Anfield í dag, og nú í fyrsta skipti sem þjálfari í ensku úrvalsdeildinni, þegar Aston Villa heimsækir Liverpool. Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, jós lofi yfir fyrrum fyrirliða liðsins í vikunni.

„Þetta er mögnuð saga og ég get ekki ímyndað mér hvernig honum líður,“ sagði Klopp í samtali við BT Sport.

„Ég veit að hann bað um að hafa þetta ekki of tilfinningaþrungið. Hann er reynslumikill þjálfari sem veit hvernig á að nálgast hlutina, en ég held að hann hafi ekki hugmynd um hvernig þetta verður þegar hann gengur út á völlinn.“

Klopp tók við Liverpool örfáum mánuðum eftir að Gerrard yfirgaf liðið, en Þjóðverjinn segist aðeins hafa heyrt jákvæða hluti um hans tíma hjá félaginu, en vonast til þess að hann hafi enga ástæðu til þess að fagna.

„Ég hef ekki heyrt neinn segja neitt neikvætt um Gerrard síðan ég kom hingað, en hann mun vilja koma hingað  til að vinna fótboltaleikinn.“

„Hann segir kannski að hann vilji ekki hafa þetta tilfinningaþrungna stund, en ég man hvernig þetta var þegar ég var með Borussia Dortmund og fór að spila á móti Mainz og við skoruðum. Ég gleymdi algjörlega minni sögu með Mainz og fagnaði eins og brjálæðingur.“

„Hann má alveg gera það líka, ég vona bara að hann hafi enga ástæðu til þess.“

Klopp var einnig spurður hvort að hann hafi trú á því að Gerrard taki við sem knattspyrnustjóri Liverpool einn daginn.

„Já, ég held að það sé klárt mál. Hann er að gera frábæra hluti og er mjög ungur af knattspyrnustjóra að vera.“

„Hvenær er rétti tíminn fyrir menn að taka við sem knattspyrnustjór? Við sáum Frank Lampard gera það hjá Chelsea. En, já, ég held að við munum klárlega sjá það gerast - og það er gott fyrir alla.“

Klopp bætti einnig við að hann telji ekki að Gerrard þurfi að vinna titla áður en hann taki við Liverpool.

„Ég veit ekki hvað þú þarft að gera til að taka við Liverpool. Ég veit að fólk segir að þú þurfir að vinna titla, en ég er ekki viss um það. Það er mikilvægara að vinna titla á meðan þú ert hérna frekar en að hafa unnið eitthvað í fortíðinni og allt þetta kjaftæði um að hafa sannað þig sem sigurvegari. Þú getur hafa unnið titla í fortíðinni og svo aldrei aftur,“ sagði Klopp að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×