Verður fyrsta konan til að gegna embætti forseta í Hondúras Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2021 09:02 Xiomara Castro hefur tvívegis áður boðið sig fram til forseta á síðustu árum. AP Xiomara Castro mun taka við embætti forseta Mið-Ameríkuríkisins Hondúras. Stjórnarflokkurinn í landinu hefur þegar lýst yfir ósigri í forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn.
Castro var forsetaframbjóðandi vinstriflokksins Frelsisflokksins (Libre) og mælist sem stendur með um 20 prósent meira fylgi en helsti andstæðingur hennar, Nasry Asfura. Sigur Castros bindur enda á tólf ára valdatíð hægriflokksins Þjóðarflokksins, en stjórnartíðin hefur einkennst af fjölda hneykslismála og ásakana um spillingu. Castro mun taka við embætti forseta af Juan Orlando Hernández. Hann hefur verið sakaður um tengsl við undirheimana eftir að bróðir hans, Antonio, var dæmdur í fangelsi vegna fíkniefnasmygls til Bandaríkjanna. Castro hefur heitið því að „draga Hondúras út úr hyldýpi „eiturlyfja-einræðis“ og spillingar“. Eiginmaður Castros, Manuel Zelaya, var forseti landsins á árunum 2006 til 2009. Honum var bolað frá í kjölfar valdaráns og hefur Castro tvívegis boðið sig fram til forseta eftir að Zelaya var komið frá. Talning stendur enn yfir og á landskjörstjórn enn eftir að lýsa formlega yfir sigurvegara.
Hondúras Tengdar fréttir Forseti Hondúras sakaður um að þiggja dóppeninga Bandarískir saksóknarar segja að forseti Hondúras hafi þegið tugi þúsunda dollara frá þekktum fíkniefnabaróni í skiptum fyrir að héldi hlífiskildi yfir ólöglegri starfsemi hans um það leyti sem hann var kjörinn forseti. 4. mars 2020 11:20 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Forseti Hondúras sakaður um að þiggja dóppeninga Bandarískir saksóknarar segja að forseti Hondúras hafi þegið tugi þúsunda dollara frá þekktum fíkniefnabaróni í skiptum fyrir að héldi hlífiskildi yfir ólöglegri starfsemi hans um það leyti sem hann var kjörinn forseti. 4. mars 2020 11:20