Innlent

Ráðning Andra framlengd og Stefán Hrafn snúinn aftur

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Stefán Hrafn Hagalín og Andri Ólafsson.
Stefán Hrafn Hagalín og Andri Ólafsson.

Tímabundin ráðning Andra Ólafssonar í starf upplýsingafulltrúa hjá Landspítalanum hefur verið framlengd til 1. febrúar. Stefán Hrafn Hagalín, sem er deildarstjóri samskiptadeildar, hefur snúið aftur til starfa.

Þetta kemur fram í svörum Landspítalans við fyrirspurn Vísis.

Þar segir að í verkahring Andra sé fyrst og fremst þjónusta við fjölmiðla en meðal annarra verkefna samskiptadeildar séu víðtækari upplýsingamiðlun til starfsfólks og almennings, framleiðsla fræðsluefnis og rekstur vefsvæða og samskiptamiðla spítalans.

Þá segir jafnframt að framtíðarfyrirkomulag upplýsingamála á Landspítalanum sé til skoðunar og gert sé ráð fyrir að niðurstöður þeirrar vinnu liggi fyrir í byrjun næsta árs.

Tilkynnt var um tímabundna ráðningu Andra 26. ágúst síðastlinn en í tilkynningu kom fram að hann yrði samskiptadeildinni til liðsinnis næstu þrjá mánuði. Þegar Andri var ráðinn til Landspítalans starfaði hann sem aðstoðarmaður rektors Háskóla Íslands.

Á sama tíma og tilkynnt var um ráðningu Andra var greint frá því að Stefán Hrafn væri á leið í frí en hann hafði þá valdið nokkru uppþoti með tölvupósti sem hann sendi á stjórnendur spítalans. 

Þar beindi Stefán því til annarra yfirmanna að beina öllum fyrirspurnum fjölmiðla til sín, kallaði fjölmiðlamenn „skrattakolla“ og varaði við því að svara ákveðnum númerum. 

Stefán baðst afsökunar nokkrum dögum síðar og sagðist hefðu átt að lesa bréfið yfir.

„Það er búið að hirta mig, þetta voru um þrjátíu eða fjörutíu fréttir í gær og í fyrradag í leiðurum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins. Þannig að ég er allavega búinn að fá þá hirtingu sem ég sennilega bara átti skilið og framleiddi sjálfur. Er það ekki yfirleitt þannig að holurnar sem við hrösum um eru þær sem við höfum grafið sjálf?“ sagði Stefán Hrafn.


Tengdar fréttir

Yfirlæknarnir vilja óþvingað tjáningar- og skoðanafrelsi

Stjórn Samtaka yfirlækna á Landspítalanum sendu á föstudag frá sér yfirlýsingu þar sem þeir kölluðu eftir því að framkvæmdastjórn Landspítalaháskólahúss tæki af öll tvímæli um stöðu stjórnenda þegar kæmi að opinberri umræðu um heilbrigðismál og starfsemi spítalans.

„Ég hefði kannski átt að lesa bréfið yfir“

Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, baðst afsökunar á bréfi sem hann sendi öllum tæplega 300 stjórnendum Landspítalans í útvarpsþættinum Vikulok á Rás 1 í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×