Jordan og Curry voru báðir staddir á Ryder bikarnum um helgina þar sem bandaríska landsliðið vann stórsigur.
Golf Channel var að sjálfsögðu með veglega útsendingu frá keppninni og þau fengu Curry og Jordan til að ræða saman um golf fyrir framan myndavélarnar.
Það sem vakti sérstaka athygli var samanburður Michael Jordan á körfuboltanum og golfinu. Jordan er mögulega besti körfuboltamaður sögunnar og vann meðal annars sex NBA titla og tvö Ólympíugull á sínum stórkostlega ferli.
„Ég byrjaði í golfi vegna þess að mínu mati er golf erfiðasta íþróttin fyrir keppnismann,“ sagði Michael Jordan við Curry sem tók undir það.
„Ég gat alltaf brugðist við varnarmanni á móti mér eða leikmanni sem ég var að dekka. Í golfi er eins og þú sért að spila fyrir framan spegil og þú ert alltaf að elta þessa fullkomnun, í hverju einasta höggi og hverju einasta pútti,“ sagði Jordan.
„Fyrir mikinn keppnismann eins og mig þá heldur golfið mér heilum á geðsmunum. Þegar ég hætti í körfuboltanum á sínum tíma þá var golfið nóg til að sinna keppnisþörfinni minni. Í dag get ég reyndar orðið alveg vitlaus líka á golfinu og þá fer ég að veiða á milli þar sem ég þarf að sýna þolinmæði sem svo nýtust mér í golfinu,“ sagði Jordan.
Jordan var kominn á fullt í golfinu þegar hann var að spila körfubolta. Þekkt er hversu mikið golf hann spilaði þegar hann var með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992.