Gripinn með kíló af kókaíni í ferðatöskunni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. ágúst 2021 10:33 Fíkniefnin fundust falin í botni ferðatösku sem maðurinn hafði meðferðis. Vísir/Jóhann K. Þýsk-rússneskur karlmaður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi hér á landi fyrir innflutning á rétt tæpu kílói af kókaíni. Maðurinn játaði sök þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 993,66 grömmum af kókaíni ætluðu til sölu hér á landi í ágóðaskyni. Ef miðað er við verðkönnum SÁÁ á götuvirði fíkniefna, sem síðast var gerð í mars á síðasta ári, má ætla að götuvirði kókaínsins sé rúmar tólf milljónir króna. Flaug maðurinn hingað til lands þann 12. júní síðastliðinn frá Amsterdam í Hollandi. Fíkniefnin reyndust falin í botni ferðatösku sem maðurinn hafði meðferðis við komuna til landsins. Var maðurinn gripinn við komuna til landsins og úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir að hann flaug hingað til lands. Við þingfestingu málsins játaði maðurinn sök en í dómi héraðsdóms kemur fram að engin gögn liggi fyrir um að hann hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Var maðurinn dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, auk þess sem að fíkniefnin voru gerð upptæk. Þá þarf hann einnig að greiða málskostnað vegna málsins, alls um 1,2 milljónir króna.
Dómsmál Fíkniefnabrot Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira