Rán í Reykjanesbæ Guðmundur Auðunsson skrifar 18. ágúst 2021 16:00 Árið 2014 var leigufyrirtækið Heimavellir stofnað með samruna þriggja leigufyrirtækja á húsnæðismarkaðinum. Markmiðið var að vera með fyrirtæki sem gæti keypt gífurlegan fjölda af íbúðum sem komist höfðu í eign ríkisins í kjölfar hrunsins og með því að ríkið fékk íbúðir sem herinn á Keflavíkurflugvelli hafði notað áður en hann hunskaðist á brott. Þetta húsnæði hafði verið í sanngjarnri leigu í gegnum ríkið en vegna nýfrjálshyggjutrúar stjórnvalda gekk það ekki, það þurfti að koma húsnæðinu sem var í almenningseign í hendur einkaaðila því trúarbrögðin skipuðu að sem minnst ætti að vera í eigu hins opinbera. Nú komust húsnæðisbraskararnir í feitt. Hundruðir íbúða fengust fyrir slikk á brunaútsölu og Heimavellir og önnur húsnæðisleigufyrirtæki sáu sér færi á að komast yfir gífurlegar eignir með litlum tilkostnaði. Á Ásbrú einni, á gamla hersvæðinu, komust Heimavellir yfir meira en 700 íbúðir sem voru í eigu almennings og leigðar út á sanngjörnu verði. Til viðbótar komst félagið yfir blokkir á Selfossi, í Hveragerði og héldu síðan áfram að sölsa undir sig eignum í eigu Íbúðarlánasjóðs fyrir lítinn pening út um allt land. Önnur leigufyrirtæki gerðu svipuð reyfarakaup á eigum almennings og þúsundir íbúða í almannaeigu komust í hendur braskara. Það þarf auðvitað ekki að segja ykkur tvisvar að leiguverðið stórhækkaði þegar braskarafélögin komust yfir þessar eigur almennings. Og heldur áfram að hækka, meðan félagslegt húsnæði eins og hjá Bjargi er lækkuð! Og ekki nóg með það, útþensla braskarafélaga eins og Heimavalla var kostuð af ríkinu, ekki bara í gegnum afsláttarverð á eignum heldur voru félögin svo óskammfeilin að þau sóttu niðurgreidd ríkislán sem ætluð voru fyrir óhagnaðardrifin leigufélög! Í dag heita Heimavellir Heimstaden og nota illa fenginn auð sinn til að fjárfesta í húsnæði til að okra á í fjölmörgum löndum. Og græða og græða á kosnað almennings. Allt vegna ákvarðanna stjórnvalda um að selja íbúðirnar okkar fyrir slikk. Þegar þúsundir einstaklinga hrökkluðust úr húsnæði sínu vegna hrunsins var tækifæri fyrir ríki og sveitarfélög að tryggja það að fólk gæti búið áfram í húsnæði sínu og myndi borga sanngjarna leigu í stað afborgana af lánum sem það réði ekki við. Glötuð tækifæri Suðurkjördæmi hefur farið einna verst út úr þessari braskvæðingu samfélagsins. Kjördæmið er láglaunasvæði og er því mikil þörf fyrir öflugt félagslegt húsnæðiskerfi á svæðinu. Eftir hrun komst gífurlegur fjöldi íbúðarhúsnæðis í eigu ríkisins, annað hvort í gegnum Íbúðarlánasjóð eða í gegnum bankana sem voru í ríkiseigu. Á Suðurnesjum bættist við fjöldi íbúða sem áður voru í eigu bandaríska hersins en voru nú komnar í eigu ríkisins. Þegar þúsundir einstaklinga hrökkluðust úr húsnæði sínu vegna hrunsins var tækifæri fyrir ríki og sveitarfélög að tryggja það að fólk gæti búið áfram í húsnæði sínu og myndi borga sanngjarna leigu í stað afborgana af lánum sem það réði ekki við. Á þessum grunni með viðbótina í Ásbrúarhverfi var hægt að byggja upp öflugt, félagslegt húsnæði þar sem fólki væri tryggt þak yfir höfuðið fyrir sig og fjölskyldur sínar gegn sanngjörnum, lágum mánaðargreiðslum sem það myndi vel ráða við. En þetta var ekki gert. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG 2009-2013 hafði hér frábært tækifæri til að breyta samfélaginu til muna en gerði það ekki. Enda var sú ríkisstjórn í raun stjórn hinna glötuðu tækifæra. Varla liðu nokkrir mánuðir eftir að ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins tók við 2013 þar til að allar þessar íbúðir voru færðar braskfélögum til eignar á útsöluverði. Eignasafnið var selt í heild og íbúunum var ekki einu sinni boðið að kaupa húsnæði sitt. Í staðin hækkaði leigan jafnt og þétt og fyrirtæki eins og Heimavellir fitnuðu eins og púkinn á fjósbitanum. Einkavæðing andsklotans Hvers vegna er ég að rifja upp þessa sögu? Því hún er dæmigerð fyrir viðskiptalíkan íslenskra stórkapítalista. Planið er einfalt. Komast yfir sem mest af þjónustu og eignum í eigum almennings í gengum einkavinavæðingarferli og langtímaleigusamningum við ríki og sveitarfélög og tryggja sér þannig trygga áskrift að ofsagróða á kostnað almennings. Þetta er hinn dæmigerði íslenski kapítalismi, spenakapítalisma vil ég kalla hann, því hann gengur ekki út á nýsköpun eða virðisaukningu fyrir samfélagið heldur gengur út á að komast á ríkisspenann með langtíma þjónustusamningum og með því að sölsa undir sig eignir almennings á útsölu, hvort sem um er að ræða húsakost eða banka, hjúkrunarheimili eða heilsugæslu, allt í nafni skjótfengins gróða á kostnað almennings. Stundum eru eignirnar blóðmjólkaðar og síðan seldar áfram eða seldar aftur til ríkis- og sveitarfélaga eins og tilfellið var með rafmagnsmælana í Reykjavík sem gerðu nokkra einstaklinga að milljarðamæringum og voru síðan seldir til baka til almennings á uppsprengdu verði. Eða sala á fyrirtækjum sem voru stofnuð með ákvörðunum stjórnvalda eins og Auðkenni til baka til almennings eftir að nokkurra ára ofsagróði hafði skilað sér í vasa vildarvina ríkisstjórnaflokka. Öll þessi dæmi eru um hvernig ríkir aðilar verða enn ríkari á kostnað almennings. Róttækra breytinga er þörf Það þarf ekki flókið reiknidæmi til að sýna fram á að nauðsynleg þjónusta til almennings er alltaf dýrari fyrir samfélagið í höndum braskara. Hvort sem það er rekstur hjúkrunarheimila, uppbygging vegakerfis, útvistun á ræstingu eða uppbygging á íbúðarhúsnæði, opinberir aðilar geta alltaf fjárfest á ódýrari hátt. Sýndur „sparnaður“ með útboðum á þjónustu eins og ræstingum á opinberum stofnunum fæst ekki nema með því að þvinga launin niður, eins og verið er að gera á hjúkrunarheimilinu á Akureyri og losa sig við þjálfað starfsfólk til að lækka launakostnað. Það segir sig sjálft að slíkt er ekki í þágu almenningshagsmuna. En samt heldur vitleysan áfram og flokkar eins og Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Miðflokkurinn boða stóraukna einkavæðingu á eignum og þjónustu almennings. Allt í nafni trúarbragða nýfrjálshyggjunnar um að allt eigi að vera einkarekið. Kosningarnar í haust er því gífurlega mikilvægar ef við ætlum að snúa þessari þróun við. Miðjuflokkar eins og Samfylkingin og VG halla sér hvor að sínum auðvaldsflokki, Samfylkingin að Viðreisn með einkavæðingar drauma sína, VG að Sjálfstæðisflokki „af því að samstarfið gengur svo vel“. Píratar eru hrifnir af „Reykjavíkurstjórn“ með Viðreisn innanborðs. En innan þessara flokka er líka gott fólk sem getur hjálpað til við að byggja nýtt samfélag. En til þess að hægt sé að byggja breiða vinstrifylkingu á Alþingi þarf að tryggja Sósíalistaflokknum góða kosningu í haust því þannig og aðeins þannig verður stjórnað til vinstri því annars er hætt á að auðvaldi haldi áfram undirtökum sínum í samfélaginu með þessari eða hinni hækjunni frá miðju og vinstri. Sósíalistar er eini flokkurinn sem hefur sett fram heildstæða, róttæka stefnu í húsnæðismálum. Ákvörðun okkar sem kjósenda í haust er því gífurlega mikilvæg. Kjósum því J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Alþingiskosningunum 25. september næstkomandi. Höfundur skipar fyrsta sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Sósíalistaflokkurinn Húsnæðismál Mest lesið Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir Skoðun Er gott að sjávarútvegur skjálfi á beinunum? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Hvers virði er innbúið? Hrefna Kristín Jónsdóttir Skoðun Hver er ábyrgð barna? Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Varasjóður VR Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Allar konur eru konur. Punktur. Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hver er ábyrgð barna? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Rafbílar eru ódýrari Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Er gott að sjávarútvegur skjálfi á beinunum? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda? Erna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er innbúið? Hrefna Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við semja frið við náttúruna? Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir kennurum eykur árangur nemenda Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Hinn dökki fíll í rými jafnréttis Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Í tilefni af kjaradeilu FÍL og LR vegna listamanna í Borgarleikhúsinu Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Keyrt í gagnstæðar áttir við Vonarstræti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Rannsóknir í Hvalfirði skapa enga hættu Salome Hallfreðsdóttir skrifar Skoðun Hagsmunasamtök ESB gegn togveiðum: Hvað er í húfi fyrir Ísland? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Litla flugan Rebekka Hlín Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Um jarðgöng, ráðherra og blaðamenn Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Elskar þú að taka til? Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind, fordómar og siðferði – nýir tímar, ný viðmið Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Kirkjusókn ungra drengja Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Vigdís og Súðavík Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Heimskan í Hvíta húsinu – forðumst smit Halldór Reynisson skrifar Skoðun Ég á lítinn skrítinn skugga – langtímaáhrif krabbameina Hulda Hjálmarsdóttir skrifar Sjá meira
Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun
Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar
Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar
Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar
Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar
Skoðun Í tilefni af kjaradeilu FÍL og LR vegna listamanna í Borgarleikhúsinu Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar
Skoðun Hagsmunasamtök ESB gegn togveiðum: Hvað er í húfi fyrir Ísland? Svanur Guðmundsson skrifar
Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun
Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun