Skoða hvort breyta eigi reglunum um bikiníbuxurnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. júlí 2021 10:58 Norska kvennalandsliðið í strandhandbolta í stuttbuxunum sem þær mega ekki spila í. norska handknattleikssambandið Evrópska handknattleikssambandið, EHF, skoðar nú hvort það eigi að breyta reglum um klæðaburð kvenna á mótum í strandhandbolta.
Strangar reglur eru um klæðnað kvenna en þær þurfa að klæðast bikiníi á mótum. Á meðan eiga karlar að klæðast hlýrabolum og stuttbuxum. Norska handknattleikssambandið hefur farið fremst í baráttunni um að breyta þessum reglum og óskaði eftir því að kvennalandsliðið fengi að spila í stuttbuxum á EM í Búlgaríu sem lauk um helgina. Norska liðinu var hótað sektum og að því yrði jafnvel hent úr keppni fyrir að fara ekki eftir reglum um klæðaburð og gaf þá eftir. En í lokaleik sínum á EM, gegn Spáni um 3. sætið, mætti Noregur til leiks í stuttbuxunum sem þær óskuðu eftir að spila í fyrir mótið. Fyrir það fékk norska liðið sekt upp á 1.500 evrur, eða rétt rúmlega 220 þúsund íslenskar krónur. Í yfirlýsingu sem birtist á vef EHF kemur að á döfinni sé að fara yfir og jafnvel endurskoða reglur um klæðaburð kvenna á mótum í strandhandbolta. Það verði gert í samvinnu við IHF, Alþjóða handknattleikssambandið. Í yfirlýsingunni segir að EHF sé staðráðið í að auka vinsældir strandhandbolta og hlusti á allar tillögur sem geti hjálpað til í þeim efnum. Þar segir einnig að málið hafi verið rætt á fundi þings EHF í apríl 2021 að frumkvæði norska handknattleikssambandsins og í framhaldinu hafi verið ákveðið að taka það fyrir á fyrsta fundi sérstaks strandhandknattleikssambands í ágúst. Forseti norska handknattleikssambandsins, Kåre Geir Lio, segir að það hafi barist fyrir því að breyta reglunum í nokkur ár, úrbútum hafi verið lofað en ekkert hafi svo gerst.
Handbolti Norski handboltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira