Innlent

Leggur til sjálfsmyndabann við ferðamannastaði

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hefur áhyggjur af þeirri hættu sem getur skapast við sjálfsmyndatökur við ferðamannastaði.
Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg hefur áhyggjur af þeirri hættu sem getur skapast við sjálfsmyndatökur við ferðamannastaði.

Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem geti skapast við sjálfsmyndatökur ferðamanna. Hann segir að annað hvort þurfi að koma upp öruggum útsýnispöllum eða banna sjálfsmyndatökur.

Jónas var gestur í Reykjavík síðdegis í dag. Þar ræddi hann tvö nýleg atvik þar sem ferðamenn sýndu af sér mikla áhættuhegðun í þeim tilgangi að ná góðri mynd. Annars vegar tvær manneskjur sem hættu sér út á ystu brún Dettifoss og hins vegar karlmann sem gekk á hrauni sem vall úr eldgosinu í Geldingadölum.

Jónas segir að hér á landi sé öflug upplýsingagjöf sem nái til flestra ferðamanna. „En þótt við næðum til allra, þá eru alltaf einhverjir sem fara út á brúnina í orðsins fyllstu merkingu.“

Þá segir hann að í atvikunum við Dettifoss og eldgosið í Geldingadölum hafi verið um að ræða einbeittan brotavilja. Boð og bönn hefðu líklegast skipt litlu máli.

Jónas telur aðstæður vera til fyrirmyndar við Fjaðrárgljúfur og Goðafoss, þar sem útsýnispallar eru í öruggri fjarlægð frá aðdráttaraflinu. „En það er leiðinlegt ef heimskuleg hegðun eins og sást þarna við eldgosið verður til þess að öllum sé ýtt bara hálfum kílómeter í burtu.“

Þá leggur Jónas til að sjálfsmyndatökur verði bannaðar við ákveðna ferðamannastaði, þar sem öruggir útsýnispallar eru ekki til staðar. Það væri á ábyrgð landvarða að þeim reglum væri fylgt eftir.

Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×