„Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júní 2021 08:54 Kristján Oddsson og Alma Möller landlæknir. Landlæknisembættið hefur svarað fyrirspurnum Vísis um vinnubrögð Kristjáns, sem stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir hafði óskað eftir. Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt.
Þetta segir í svari landlæknisembættisins við fyrirspurnum Vísis um það hvort Kristján Oddsson, yfirmaður Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana (SKS), hafi heimild til að taka fram fyrir hendurnar á kvensjúkdómalæknum sem vilja láta rannsaka leghálssýni. Vísir greindi frá því á dögunum að Kristján hefði ákveðið að láta ekki rannsaka leghálssýni konu, þrátt fyrir að kvensjúkdómalæknir konunnar hefði tekið sýni og beðið um rannsókn. Samkvæmt tölvupósti Kristjáns til konunnar hringdi hann í kvensjúkdómalækninn og fór fram á skýringar, þar sem of skammt var um liðið frá því að annað sýni frá konunni var rannsakað. „Lýðgrunduð skimun er skimun á heilbrigðum konum, þ.e. ekki konum sem eru með einkenni, og framkvæmd eftir fyrirfram ákveðnu kerfi. Hérlendis er farið eftir dönskum leiðbeiningum og er mikilvægt að þeim sé fylgt. Það er mikilvægt að skilja á milli sýna sem tekin eru vegna einkenna og skimunar og ekki á að taka sýni frá heilbrigðum konum oftar en leiðbeiningar kveða á um,“ segir í svari landlæknis. „Ef kvensjúkdómalæknar eru að taka sýni utan skilgreinds skimunartíma þurfa þeir að gefa upp ástæðu þess en það er gert ráð fyrir því að hægt sé að senda sýni einnig af læknisfræðilegri ástæðu.“ „Konur geta ekki pantað ákveðna rannsókn“ Vísir spurði að því hvort Kristján hefði heimild til að ákveða hvort sýni væru HPV-greind og/eða frumuskoðuð, jafnvel þótt læknar bæðu um annað. Landlæknir svarar þessu ekki beint en segir: „Hvort skimunarsýni er HPV-mælt eða frumuskoðað fer eftir skimunarleiðbeiningum sem ákveðið hefur verið að fylgja sem og fyrri sögu konunnar. Lýðgrunduð skimun fer eftir ákveðnu kerfi og ekki hægt að panta rannsóknir eftir óskum einstaklings.“ Þetta er ítrekað í svari við þeirri spurningu hvort Kristján geti neitað konum um sýnatöku og rannsókn almennt, til dæmis ef þær óska eftir sýnatöku og rannsókn á heilsugæslustöð. „Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk heldur er farið eftir fyrirfram skilgreindu skimunarkerfi, þannig hefur það alltaf verið. Þess vegna á ekki að taka sýni hjá konu ef ekki er kominn tími á sýnatöku samkvæmt skimunarsögu konunnar. Það er þá mikilvægt að útskýra fyrir konunni af hverju slíkri beiðni er hafnað. Landlæknir hvetur konur til að kynna sér kosti og ókosti skimunar, sjá t.d. á landlaeknir.is, undir Gæði og eftirlit.“ En er landlæknir sammála þeirri ákvörðun Kristjáns að heimila ekki frumurannsóknir að beiðni kvenna sem falla ekki undir þá hópa sem eiga rétt á frumurannsókn? „Sama svar og í #3, konur geta ekki pantað ákveðna rannsókn. Aðferð sem notuð er í hverjum aldurshópi byggir á bestu vísindalegu þekkingu.“ HPV-neikvæð krabbamein munu ekki finnast fyrr en einkenni gera vart við sig Konan sem um ræðir, Bryndís Sigurðardóttir, fór í sýnatöku í maí þar sem henni þóttu svör sem hún fékk úr rannsókn sýnis frá því í janúar ekki traustvekjandi. Þeim bar ekki saman og þá hafði hún greinst bæði með HPV og frumubreytingar í ágúst í fyrra. Í samtali við Vísi sagðist hún hafa upplifað neitun Kristjáns um að rannsaka nýja sýnið sem refsingu fyrir að hafa haft samband við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana og kvartað, meðal annars vegna langs biðtíma eftir niðurstöðum. Vísir hefur sent Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu fyrirspurn þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um það hvernig heilsugæslan ætlar að fylgjast með því hvort sýni sem eru að koma frá kvensjúkdómalæknum séu skimunarsýni eða einkennasýni. Bryndís sagði sögu sína fyrst í Facebook-hópnum „Aðför að heilsu kvenna“, sem nú telur um 15 þúsund meðlimi. Í athugasemd við færsluna er vakin athygli á þeirri staðreynd að stór hópur kvenna er nú aðeins HPV-greindur. Athugasemdina skrifar kona sem greindist með hágráðu frumubreytingar þrátt fyrir að vera HPV neikvæð. Þar sem það er afstaða landlæknisembættisins að konur geti ekki óskað eftir frumurannsókn ef þær tilheyra ekki þeim hóp sem á rétt á slíkum rannsóknum samkvæmt skimunarleiðbeiningum, er erfitt að sjá hvernig tilvik á borð við það sem frá er greint hér að ofan eiga að finnast fyrr en einkenni eru til staðar. Frumurannsóknir á leghálssýnum eru nú aðeins framkvæmdar í Danmörku, samkvæmt samningi heilsugæslunnar við Hvidovre-sjúkrahúsið, og því einsýnt að konur geta ekki leitað til kvensjúkdómalæknis til að fá frumusýni rannsakað utan skimunarkerfisins. Engar tölur eru til um tíðni HPV-neikvæðra krabbameina á Íslandi en erlendar rannsóknir benda til þess að tíðnin sé um 5 prósent.
Heilbrigðismál Skimun fyrir krabbameini Heilsugæsla Tengdar fréttir Þurfa að handvinna gögn úr leghálssýnatökum Tæknilegir erfiðleikar við úrvinnslu leghálssýna hafa orðið til þess að biðtími eftir niðurstöðum úr leghálssýnatöku hefur lengst talsvert frá því að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tók við verkefninu. Forstjóri heilsugæslunnar segir að ekki verði hægt að laga þetta fyrr en á síðari hluta þessa árs. 2. júní 2021 23:14 Heilsugæslan horfir til framtíðar í samvinnu við Hvidovre Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hyggst síðar á þessu ári bjóða konum upp á að taka sjálfar leghálssýni. Þetta er sagt munu verða gert í samvinnu við rannsóknarstofu Hvidovre-sjúkrahússins en enn er óljóst hver mun sinna umræddum rannsóknum. 1. júní 2021 12:34 Þykir leitt að yfirfærslan gekk ekki sem skyldi Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir ferlið við greiningar á leghálssýnum í Danmerku ganga betur með hverri vikunni sem líður. 31. maí 2021 13:46 Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku. 21. maí 2021 14:57 Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21. maí 2021 09:06 Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Sjá meira
Þurfa að handvinna gögn úr leghálssýnatökum Tæknilegir erfiðleikar við úrvinnslu leghálssýna hafa orðið til þess að biðtími eftir niðurstöðum úr leghálssýnatöku hefur lengst talsvert frá því að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tók við verkefninu. Forstjóri heilsugæslunnar segir að ekki verði hægt að laga þetta fyrr en á síðari hluta þessa árs. 2. júní 2021 23:14
Heilsugæslan horfir til framtíðar í samvinnu við Hvidovre Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hyggst síðar á þessu ári bjóða konum upp á að taka sjálfar leghálssýni. Þetta er sagt munu verða gert í samvinnu við rannsóknarstofu Hvidovre-sjúkrahússins en enn er óljóst hver mun sinna umræddum rannsóknum. 1. júní 2021 12:34
Þykir leitt að yfirfærslan gekk ekki sem skyldi Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir ferlið við greiningar á leghálssýnum í Danmerku ganga betur með hverri vikunni sem líður. 31. maí 2021 13:46
Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku. 21. maí 2021 14:57
Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21. maí 2021 09:06