Berlusconi sagður alvarlega veikur Kjartan Kjartansson skrifar 19. maí 2021 12:47 Berlusconi er 84 ára gamall og hefur verið fastagestur á sjúkrahúsum undanfarin misseri. Vísir/EPA Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er alvarlega veikur. Saksóknari sem rekur mál gegn honum í Mílanó hefur óskað eftir því að réttarhöldum verði tímabundið frestað vegna veikinda hans.
Ítrekað hefur þurft að fresta réttarhöldunum yfir Berlusconi vegna veikinda hans. Auðkýfingurinn og fyrrverandi forsætisráðherrann er ákærður fyrir að hafa mútað vitnum til að þegja um vændishring sem gerði út stúlkur undir lögaldri. Frá því að Berlusconi, sem er 84 ára gamall, smitaðist af Covid-19 í september hefur hann þurft að leggjast inn á sjúkrahús trekk í trekk. Síðast var Berlusconi útskrifaður af sjúkrahúsi í Mílanó eftir fimm daga dvöl á fimmtudag. Áður hafði hann verið lagður inn einu sinni í mars og tvisvar í apríl. Í janúar var hann lagður inn vegna hjartaveikinda. „Við teljum sannarlega að Berlusconi sé alvarlega veikur og að hann þjáist af alvarlegum sjúkdómi. Þetta er það sem læknisvottorð og vitjanir benda til,“ sagði Tiziana Siciliano, saksóknari, í réttarsal, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Berlusconi gegndi embætti forstætisráðherra í fjórgang. Hann hrökklaðist að lokum úr embætti eftir að upplýst var um kynferðislegt samband hans við ungar stúlkur árið 2011.
Ítalía Tengdar fréttir Berlusconi útskrifaður af sjúkrahúsi og dvelur í lúxusvillu sinni Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið útskrifaður eftir 24 daga dvöl á sjúkrahúsi. Berlusconi útskrifaðist á föstudag en þá hafði hann dvalið á San Raffaele sjúkrahúsinu síðan 6. apríl hvar hann undirgekkst fjölda rannsókna. 1. maí 2021 11:35 Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Sjá meira
Berlusconi útskrifaður af sjúkrahúsi og dvelur í lúxusvillu sinni Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið útskrifaður eftir 24 daga dvöl á sjúkrahúsi. Berlusconi útskrifaðist á föstudag en þá hafði hann dvalið á San Raffaele sjúkrahúsinu síðan 6. apríl hvar hann undirgekkst fjölda rannsókna. 1. maí 2021 11:35