Ronaldo steig upp í mikilvægum sigri, markaflóð hjá AC og meistararnir afgreiddu Roma Anton Ingi Leifsson skrifar 12. maí 2021 20:44 Ronaldo ánægður með markið sitt í kvöld. Daniele Badolato/Getty Juventus vann mikilvægan 3-1 sigur á Sassuolo á útivelli í ítalska boltanum en alls voru átta leikir á dagskránni í kvöld. Sassuolo klúðraði vítaspyrnu á 16. mínútu en tólf mínútum síðar kom Adrien Rabot Juventus yfir. Cristiano Ronaldo tvöfaldaði forystuna fyrir hlé en minnkuðu muninn á 58. mínútu áður en Paulo Dybala skoraði þriðja mark Juve á 66. mínútu. Þetta var ansi mikilvægur sigur fyrir Juventus en þeir eru þó enn ekki í Meistaradeildarsæti. Þeir eru í immta sætinu með 72 stig, stigi á eftir Napoli og þremur stigum á eftir AC Milan og Atalanta er tvær umferðir eru eftir. AC Milan niðurlægði Torino, 7-0, og heldur þar af leiðandi í þriðja sætið. Ante Rebic gerði þrjú mörk, Theo Hernandez tvö og þeir Brahim Diaz og Franck Kessie sitt hvort markið. Franck Kessié’s game by numbers vs. Torino: 100% duels won (6/6) 92% pass accuracy 76 touches 10 ball recoveries 3 shots 3 tackles2 shots on target 2 chances created 1 goal 1 assist Enjoyed himself this evening. 💪 pic.twitter.com/AAUTuCydEi— Squawka Football (@Squawka) May 12, 2021 Ítölsku meistararnir í Inter unnu svo 3-1 sigur á Roma. Marcelo Brozovic og Matias Vecino komu Inter í 2-0 áður en Henrikh Mkhitaryan minnkaði muninn fyrir Roma. Romelu Lukaku innsiglaði svo sigur Juventus á 90. mínútu en Inter er orðið ítalskur meistari. Andri Fannar Baldursson var ónotaður varamaður hjá Bologna sem tapaði 2-0 fyrir Genoa á heimavelli. Bologna er í ellefta sætinu. Ítalski boltinn