Íslendingar í undanúrslit, stoðsending frá Böðvari og hálftími hjá Alfreð Anton Ingi Leifsson skrifar 20. apríl 2021 20:22 Ómar Ingi fagnar marki fyrr á leiktíðinni en hann lék á als oddi í dag. Uwe Anspach/Getty Rhein-Neckar Löwen og Magdeburg eru komin í undanúrslit Evrópukeppninnar í handbolta en síðari leikir átta liða úrslitanna fóru fram í kvöld.
Ljónin unnu tíu marka sigur á Medvedi í síðari leiknum í kvöld, 37-27, og fóru samanlagt áfram 69-60. Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað fyrir þýska liðið. Magdeburg vann átta marka sigur á öðru Íslendingaliði, Kristianstad, og samanlagt leikina tvo 73-59. Ómar Ingi Magnússon fór á kostum og var með nú mörk en Ólafur Guðmundsson gerði fjögur fyrir Kristianstad og Teitur Örn Einarsson eitt. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í GOG eru hins vegar úr leik eftir fimm marka tap í síðari leiknum gegn Wisla Plock. Samnlagt töpuðu GOG því einvíginu með tveimur mörkum. Dagný Brynjarsdóttir spilaði allan leikinn í markalausu jafntefli West Ham gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. West Ham er í níunda sætinu með þrettán stig. Böðvar Böðvarsson lagði upp eitt marka Helsingborgar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Böðvar spilaði allan leikinn í 4-1 sigri en hann lagði upp markið fyrir fyrrum FH-inginn, Brand Henriksson. Helsingborg með fjögur stig eftir tvær umferðir. Alfreð Finnbogason spilaði í hálftíma er Augsburg tapaði 2-0 fyrir Eintracht Frankfurt á heimavelli í þýska boltanum. Alfreð var að snúa aftur eftir meiðsli. Í B-deildinni í Þýskalandi spilaði Victor Pálsson allan leikinn í 3-1 sigri Darmstadt á Wuerzburger Kickers en Darmstadt er í tíunda sætinu.
Fótbolti Handbolti Sænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira