Hvernig skal sjóða íslenskan frosk Viggó Örn Jónsson skrifar 6. apríl 2021 11:01 Nú er ár liðið. Líf okkar hefur breyst mikið og við getum ekki lengur sagt með góðri samvisku að við búum í frjálsu samfélagi. Það sem átti að vera nokkurra vikna átak til að fletja út kúrfu er orðið að tímalausri styrjöld við veiru sem er ekki hægt að útrýma og til þess eigum við öll að vera tilbúin að fórna frelsi okkar. Smátt og smátt höfum við gefið eftir stjórn á fleiri og fleiri þáttum í okkar lífi. Til að sjóða frosk lifandi þarf að hita vatnið hægt. Annars hoppar hann uppúr. Það verður smátt og smátt eðlilegt að mega ekki mæta í vinnu, fara í sund, fara í ferðalög eða bjóða fólki heim til sín í mat. Hægt og hægt verður hugmyndin um eðlilegt líf fjarlægari. Það gleymist að fortíðin er ekki eðlileg. Það er nútíminn sem er eðlilegur. Þetta er nú líf okkar. Daglegur skammtur af hysteríu Hvað gerist þegar þér er sagt á hverjum einasta degi frá einhverri einni hættu? Þegar allir fjölmiðlar tyggja sömu staðreyndirnar? Tölurnar uppfærðar á hverjum degi eins og um sé að ræða langmikilvægustu hættu samtímans? Hvað gerist þegar óttinn er stöðugt nærður? Eftir 11. september 2001 var stöðug umræða um hryðjuverk í öllum fjölmiðlum heims, dag eftir dag eftir dag. Afleiðingin var sú að fólk ofmat gríðarlega hættuna af hryðjuverkum og ofmat enn meir hættuna á að verða sjálft fyrir hryðjuverkum. Fyrir vikið var fólk tilbúið að styðja umfangsmiklar og stórtækar aðgerðir eins og hina sturluðu innrás í Írak, hermenn á götum úti og njósnir hins opinbera á eigin borgurum. Til þess að tryggja eigið öryggi var fólk tilbúið að hefja styrjaldir í fjarlægum löndum. Óttinn eyðileggur samkennd. Óttinn eyðileggur umræðu. Hrætt fólk tekur dómgreindarlausar ákvarðanir og segir eins og lögmaðurinn sagði í liðinni viku um fólk sem var verið að loka inni án dóms og laga: "Hættið að væla. Lagagrundvöllurinn er aukaatriði." Kunnugleg orð frá umræðunni um Guantanamo Bay. Litlu hlutirnir Þetta hefur verið ár grímunnar. Okkur var sagt að þær virkuðu alls ekki en var svo skyndilega sagt að þær væru lífsnauðsynlegar. Fyrir utan verslanir stendur fólk og grefur upp krumpaða klúta úr vasanum sem eru búnir að vera þar vikum saman. Hvers vegna? Trúir því einhver í alvörunni að þetta geri gagn? Grímurnar eru ekki sóttvarnarráðstöfun. Þær eru tæki til að láta fólk hlýða. Gera það sýnilegt að við eigum öll að lúta höfði fyrir ákvörðunum yfirvalda. Ákvörðun sem er fráleit í dag er orðin eðlileg og sjálfsögð ári seinna þegar við erum öll búin að hlýða henni nógu lengi. Þegar Inga Sæland vildi loka fólk inni í Egilshöll þótti það fyndið. Ári síðar er búið að hita nógu vel upp í vatninu til þess að sambærilegar ráðstafanir þykja fullkomlega eðilegar. Samt erum við miklu öruggari nú. Samt er búið að bólusetja stóran hluta þeirra sem eru í einhverri raunverulegri hættu. Þetta ár ætti að gera það auðveldara að skilja hvernig fólk hefur í fortíðinni glatað réttindum sínum fyrir falskt öryggi. Hversu lengi? Við búum nú í landi þar sem er eðlilegt að nágranni þinn hringi á lögregluna ef þú ert með fermingarveislu. Það er eðlilegt að loka þig inni í stofufangelsi án dóms og laga. Það er eðlilegt að banna þér að mæta til vinnu eða stunda nám. Það er eðlilegt að loka verslunum, veitingastöðum, líkamsrækt, flugvöllum og almenningssamgöngum. Stór hluti samfélagsins hefur látið þetta yfir sig ganga, gegn betri vitund. Fólk hefur sætt sig við að láta undan hræðslu annarra vegna þess að þetta átti allt að vera tímabundið. En markmiðinu er stöðugt breytt. Það sem var fyrst flöt kúrfa er nú veirulaust samfélag. Við áttum að verja heilbrigðiskerfið en erum nú að bíða eftir hjarðónæmi - hvernig svo sem það er skilgreint. Við ætluðum að bólusetja viðkvæma hópa en nú virðast það vera allir. Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld svari því hversu lengi þessi bilun á að halda áfram. Hvenær, nákvæmlega, á þetta svokallaða þríeyki að pakka saman? Hvað, nákvæmlega, er markmiðið? Fólk er ólíkt. Sumir vilja ganga lengra en aðrir. Það er eðlilegt. Það sem er ekki eðlilegt er hinn fullkomni skortur á umræðu um sóttvarnir, markmið þeirra, gagnsemi og siðferði. Þinginu hefur mistekist að vera vettvangur umræðu. Gagnslausir fjölmiðlar hafa flutt einhliða málflutning kerfisins og þess fámenna hóps sem tekur ákvarðanirnar. Ríkisútvarpið er ekki öryggisventill heldur áróðurstæki. Án umræðu er engin gagnrýnin hugsun og mörgum fannst það beinlínis fyndið þegar blaðamaður í áramótaskaupinu dirfðist að spyrja spurninga af yfirvöldum. Vel soðnir froskar eru hlýðnir froskar. Höfundur er ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Viggó Örn Jónsson Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! Skoðun Skoðun Skoðun Sérðu táknmálið? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reynsla réttlætir ekki reglubrot Þórður Sigurjónsson skrifar Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar