Fyrirliðabandið sem Ronaldo grýtti frá sér á uppboði til að hjálpa veiku barni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2021 11:01 Cristiano Ronaldo kastar fyrirliðabandinu sér frá í leik Serbíu og Portúgals. Það gæti nú nýst til að hjálpa langveiku serbnesku barni. epa/MIGUEL A. LOPES Fyrirliðabandið sem Cristiano Ronaldo grýtti á jörðina í leik Serbíu og Portúgals hefur verið sett á uppboð. Upphæðina sem fæst fyrir fyrirliðabandið á að nota til að hjálpa veiku barni.
Ronaldo brást afar illa við þegar mark sem hann skoraði í uppbótartíma í leik Serbíu og Portúgals í undankeppni HM á laugardaginn var ekki dæmt gilt. Boltinn virtist klárlega hafa farið inn fyrir marklínuna en enginn í dómaratríóinu sá það. Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli. Ronaldo mótmælti af miklum móð og kastaði fyrirliðabandi sínu meðal annars á jörðina. Juventus-stjarnan fékk gult spjald fyrir mótmælin og gæti fengið frekari refsingu fyrir framkomu sína frá FIFA. Öryggisvörður á Rajko Mitic leikvanginum í Belgrad kippti fyrirliðabandinu með sér. Og það hefur nú verið boðið upp á netinu. Nýta á upphæðina til að hjálpa serbnesku barni sem glímir við erfið veikindi. The captain's armband that Cristiano Ronaldo threw to the ground in disgust against Serbia has been put up for auction in a bid to raise money for a sick child pic.twitter.com/JiIXUH0mbB— ESPN FC (@ESPNFC) March 31, 2021 Dómari leiksins á laugardaginn, Hollendingurinn Danny Makkelie, baðst afsökunar á að hafa ekki dæmt markið gilt. „Samkvæmt reglum FIFA þá er það eina sem ég get sagt um þetta mál er að ég bað landsliðsþjálfarann, herra Fernando Santos, og allt portúgalska landsliðið afsökunar á því sem gerðist,“ sagði Danny Makkelie við portúgalska blaðið A Bola. Portúgal vann 1-3 sigur á Lúxemborg í undankeppni HM í gær. Ronaldo skoraði eitt marka Evrópumeistaranna. Á meðan sigraði Serbía Aserbaídsjan, 1-2. Aleksandar Mitrovic skoraði bæði mörk Serba. Portúgal og Serbía eru jöfn að stigum á toppi A-riðils undankeppni HM 2022. Liðin eru með sjö stig, fjórum stigum á undan Lúxemborg sem er í 3. sæti riðilsins.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Holland skoraði sjö, Tyrkland henti frá sér sigrinum og Portúgal lenti óvænt undir Öllum leikjum dagsins í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu er nú lokið. Allt stefndi í að Tyrkland yrði með fullt hús stiga að loknum þremur leikjum en allt kom fyrir ekki. Holland skoraði sjö og Evrópumeistarar Portúgal lentu undir í Lúxemborg. 30. mars 2021 21:00 Dómarinn baðst afsökunar á því að hafa ekki dæmt mark Ronaldo gilt Hollenskur dómari hefur beðið Cristiano Ronaldo og portúgalska landsliðið afsökunar eftir að hafa gert mistök í leik i undankeppni HM. 30. mars 2021 17:30 Ronaldo útskýrir brjálæðiskastið eftir að hafa verið rændur marki Cristiano Ronaldo var rændur marki í gærkvöldi þegar Portúgal gerði 2-2 jafntefli við Serbíu í undankeppni HM 2022. 28. mars 2021 11:31 Portúgal glutraði niður tveggja marka forystu og jafnt hjá Belgum Belgía gerði 1-1 jafntefli er liðið mætti Tékklandi á útivelli í annarri umferð E-riðilsins í undankeppni HM í Katar 2022. 27. mars 2021 21:42 Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Sjá meira
Holland skoraði sjö, Tyrkland henti frá sér sigrinum og Portúgal lenti óvænt undir Öllum leikjum dagsins í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu er nú lokið. Allt stefndi í að Tyrkland yrði með fullt hús stiga að loknum þremur leikjum en allt kom fyrir ekki. Holland skoraði sjö og Evrópumeistarar Portúgal lentu undir í Lúxemborg. 30. mars 2021 21:00
Dómarinn baðst afsökunar á því að hafa ekki dæmt mark Ronaldo gilt Hollenskur dómari hefur beðið Cristiano Ronaldo og portúgalska landsliðið afsökunar eftir að hafa gert mistök í leik i undankeppni HM. 30. mars 2021 17:30
Ronaldo útskýrir brjálæðiskastið eftir að hafa verið rændur marki Cristiano Ronaldo var rændur marki í gærkvöldi þegar Portúgal gerði 2-2 jafntefli við Serbíu í undankeppni HM 2022. 28. mars 2021 11:31
Portúgal glutraði niður tveggja marka forystu og jafnt hjá Belgum Belgía gerði 1-1 jafntefli er liðið mætti Tékklandi á útivelli í annarri umferð E-riðilsins í undankeppni HM í Katar 2022. 27. mars 2021 21:42