Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 13:00 Freyr Alexandersson hefur farið afar vel af stað sem þjálfari Rosenborg í Noregi Vísir/Getty Freyr Alexandersson, þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Rosenborg, hélt sannkallaða þrumuræðu fyrir leik liðsins gegn norsku meisturunum í liði Viking á dögunum. Rosenborg vann leikinn með dramatísku sigurmarki á lokasekúndunum.
Rosenborg hefur nú birt áhugavert myndband frá síðustu leikjum Rosenborgar sem hefur farið afar vel af stað undir stjórn Freys sem tók við sem þjálfari í júní fyrr á þessu ári. Þá var Rosenborg í fallsæti og hafði aðeins unnið þrjá sigra á tímabilinu í deildinni en undir stjórn Freys hefur liðið unnið fimm af sex leikjum sínum í deildinni og er komið upp í efri hlutann. Í myndbandinu sem Rosenborg birti á YouTube rás sinni má meðal annars sjá svipmyndir frá leikdegi liðsins gegn Noregsmeisturum Viking á heimavelli á þéttsettnum Lerkendal. Áhorfendur fá að sjá þrumuræðu sem Freyr hélt fyrir leikinn. „Það versta sem gæti gerst í dag væri ekki að úrslitin væru okkur ekki í hag. Það versta sem gæti gerst er að við verðum ekki samkvæmir sjálfum okkur,“ má heyra Frey segja. „Að við höldum ekki tryggð við okkar einkenni, að við höldum ekki tryggð við það sem við erum góðir í. Eftir fremur dræma mætingu á Lerkendal fyrstu keppnisdaga tímabilsins hefur hún aukist með betri úrslitum og stemningu í kringum liðið. „Fólkið sem er mætt hingað vill vera hluti af þessu með okkur, vill vera hluti af þessu ferðlagi. Meðtakið það. Jákvæðir út á vellinum, fagnið smáu sigrunum, styðjið hvorn annan, sýnið kjark, verið hugrakkir og stórir.“ Leikar stóðu jafnir 1-1 þegar að komið var fram á fimmtu mínútu uppbótartíma venjulegs leiktíma. Þá skoraði Amin Chiakha það sem reyndist sigurmark leiksins fyrir Rosenborg. Í umræddu myndbandi má sjá geðshræringuna hjá leikmönnum og þjálfurum Rosenborgar eftir leik sem og stemninguna í klefanum.
Norski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira