Beltislaus í framsætinu með sjö mánaða barn í fanginu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. mars 2021 07:12 Lögreglan á höfuðborgarsvæðin tilkynnti mál foreldranna til Barnaverndar. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bifreið um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þar sem farþegi í framsæti hélt á ungabarni í fanginu. Þar voru á ferð foreldrar með sjö mánaða gamalt barn, sem þau sögðu hafa grátið mikið í bílstól sínum.
Faðirinn hafði brugðist við með því að losa barnið og sat með það á meðan móðirin ók. Faðirinn reyndist ekki með spennt öryggisbelti. Skýrsla var rituð um málið og það tilkynnt Barnavernd. Þá voru tveir menn í annarlegu ástandi handteknir í gærkvöldi og nótt. Annar þeirra var til vandræða í miðborginni og virtist mögulega vera að skemma bifreiðar. Hinn var handtekinn í hverfi 112. Sá fór ekki að fyrirmælum lögreglu og hrækti á lögreglumann. Hann er grunaður um brot á vopnalögum. Þar sem hann var ungur að árum var haft samband við foreldra og málið tilkynnt Barnavernd. Tilkynnt var um umferðaróhapp í hverfi 221 í gærkvöldi. Þar ók ökumaður bifreiðar á tvo kyrrstæða bíla og yfirgaf síðan vettvang. Atvikið náðist hins vegar á öryggismyndavélar og því er vitað hver tjónvaldurinn er. Þá var tilkynnt um reiðhjólaslys í hverfi 210 þegar maður datt af hjóli. Hann var með áverka á höfði og blóðugur í andliti og mundi ekki hvað hafði gerst. Hann var fluttur á bráðadeild til aðhlynningar. Nokkrir voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum og akstur án gildra ökuréttinda.
Lögreglumál Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Fleiri fréttir „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Sjá meira