Innlent

Ekki stendur til að byrja að bólusetja börn

Eiður Þór Árnason skrifar
Grunnskólum hefur verið lokað til að hefta útbreiðslu breska afbrigðisins.
Grunnskólum hefur verið lokað til að hefta útbreiðslu breska afbrigðisins. Vísir/Vilhelm

Ekki stendur til að breyta forgangsröðun í bólusetningu við Covid-19 hér á landi eða hefja bólusetningar á börnum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag.

Greint hefur verið frá því að nýlegar hópsýkingar séu drifnar áfram af hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar en rannsóknir benda til að afbrigðið sé meira smitandi og leggist frekar á börn og ungmenni en önnur afbrigði. 

Sautján börn eru nú í einangrun með virkt smit og hafa smit komið upp í fjórum grunnskólum í Reykjavík. Grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum var lokað í dag þegar hertar sóttvarnatakmarkanir tóku gildi og verður staðarnám óheimilt fram til 1. apríl hið minnsta.

Rannsóknir á breska afbrigðinu benda til að það geti valdið alvarlegum veikindum hjá ungu fólki og fólki undir fjörutíu ára aldri, sem er sá aldurshópur sem hingað til hefur sloppið hvað best við alvarleg einkenni.

Bíða eftir niðurstöðum rannsókna

Í núverandi bólusetningaáætlun stjórnvalda er einungis gert ráð fyrir því að bólusetja fullorðna einstaklinga gegn Covid-19. Byggðist þessi ákvörðun á gögnum sem sýndu að börn væru ólíklegri til að smitast af kórónuveirunni og veikjast alvarlega en aðrir aldurshópar. Þá hafa rannsóknir á bóluefnum síður náð til barna. 

„Erlendis er verið að gera rannsóknir á því hvernig bólusetning virkar hjá börnum og við bíðum eftir þeim niðurstöðum áður en við förum að ráðleggja bólusetningar hjá börnum,“ sagði Þórólfur á upplýsingafundinum.

Kúlurnar eigi líka við um börn

Fram kom í máli sóttvarnalæknis að síðustu daga hafi flest hinna nýju smita greinst hjá grunnskólabörnum. Aðspurður um það hvort sérstaklega ætti að takmarka blöndun milli ólíkra hópa barna áréttaði hann að núgildandi tíu manna fjöldatakmörk ná sömuleiðis til barna fædd 2014 eða fyrr. Kúlurnar margumtöluðu eigi ekki síður við um þennan hóp.

„Ef við hugsum um hver grunnhugmyndin er í sýkingavörnum gegn þessari veiru þá er það að koma í veg fyrir blöndun,samskipti og stóra hópamyndun eins og mögulegt er. Ég held að það ætti auðvitað að reyna að halda því í lágmarki. 

Við erum ekki með neinar sérstakar leiðbeiningar um hverjir mega hittast, börn sama bekkjar eða milli bekkja eða eitthvað slíkt en ég held að menn eigi að hafa þessar grunnreglur í huga og reyna að fara eftir þeim eins vel eins og mögulegt er.“

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Fjölmargir foreldrar halda börnum sínum heima og hljóðið þungt í leikskólakennurum

Hljóðið er þungt í leikskólakennurum að sögn formanns félags leikskólakennara. Hann segir stjórnvöld taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum fram að páskafríi. Formaður skóla- og frístundasviðs segir að fámennt verði á leikskólum í dag og á morgun. Fjölmargir foreldrar hafi ákveðið að halda börnum sínum heima.

Breska af­brigðið auki líkur á inn­lögn

Ný norsk rannsókn sýnir að fólk er 2,6 sinnum líklegra til þess að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda ef það smitast af breska afbrigðinu samanborið við upprunalega afbrigðið. Breska afbrigðið hefur verið í mikilli útbreiðslu í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×