Áttatíu nemendur og fjórir starfsmenn Laugarnesskóla í sóttkví Atli Ísleifsson skrifar 22. mars 2021 08:07 Nemendurnir sem hafa verið sendir í sóttkví eru í sjötta árgangi. Reykjavíkurborg Áttatíu nemendur og fjórir starfsmenn Laugarnesskóla í Reykjavík eru komin í sóttkví eftir að kennari við skólann greindist með kórónuveiruna í gær.
Þetta staðfestir Björn Gunnlaugsson aðstoðarskólastjóri í samtali við Vísi. Um er að ræða kennara sem kennir í sjötta bekk skólans og eru nemendurnir sem hafa verið sendir í sóttkví í fjórum bekkjum í þeim árgangi. Björn segir að umræddur kennari hafi ekki verið í vinnu síðan á þriðjudaginn. Um öryggisráðstöfun sé að ræða og verði nemendur í sóttkví í dag og boðaðir í sýnatöku í dag eða á morgun. Björn segir að skólinn hafi verið í nánum samskiptum við smitrakningarteymið og að verið sé að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum efnum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að nokkur smit hefðu greinst innanlands um helgina og þau hefðu ekki verið öll í sóttkví. Leikmaður Fylkis í Pepsi-deild karla er meðal smitaðra og eru liðsfélagar hans og Stjörnunnar í sóttkví eftir að liðin mættust í Lengjubikarnum um helgina. Að neðan má heyra Þórólf fara yfir stöðu mála í Bítinu í morgun.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Grunnskólar Reykjavík Tengdar fréttir Nokkur innanlandssmit um helgina og ekki allir í sóttkví Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að nokkrir hefðu greinst með kórónuveiruna innanlands um helgina en endanleg tala lægi ekki fyrir. Á meðal þeirra sem hafa greinst með veiruna eru kennari í Laugarnesskóla og leikmaður Fylkis í meistaraflokki karla í fótbolta. 22. mars 2021 07:59 Leikmaður Fylkis smitaður og tvö lið í sóttkví Leikmaður karlaliðs Fylkis er smitaður af kórónuveirunni og þurfa því bæði lið Fylkis og Stjörnunnar að fara í sóttkví. 22. mars 2021 07:47 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira
Nokkur innanlandssmit um helgina og ekki allir í sóttkví Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að nokkrir hefðu greinst með kórónuveiruna innanlands um helgina en endanleg tala lægi ekki fyrir. Á meðal þeirra sem hafa greinst með veiruna eru kennari í Laugarnesskóla og leikmaður Fylkis í meistaraflokki karla í fótbolta. 22. mars 2021 07:59
Leikmaður Fylkis smitaður og tvö lið í sóttkví Leikmaður karlaliðs Fylkis er smitaður af kórónuveirunni og þurfa því bæði lið Fylkis og Stjörnunnar að fara í sóttkví. 22. mars 2021 07:47