Partígestur ýtti við lögregluþjóni og sparkaði í lögreglubíl Vésteinn Örn Pétursson skrifar 27. febrúar 2021 07:37 Lögregla sinnti tveimur verkefnum vegna samkvæma sem rötuðu í dagbók hennar, fyrstu helgina eftir að samkomutakmarkanir voru rýmkaðar. Vísir/Vilhelm Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um partíhávaða frá íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík klukkan hálf eitt í nótt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þar fjöldi ungmenna með múgæsing og fóru fæst þeirra eftir fyrirmælum lögreglu, sem ekki kemur fram hver voru.
Þá segir að maður sem staddur var í samkvæminu hafi ýtt við lögreglumanni, auk þess sem hann hafi sést sparka í lögreglubifreið og reynt að hlaupa á brott. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu, en eftir handtökuna fundust ætluð fíkniefni hjá manninum, eins og lögregla orðar það í dagbókarfærslu. Þá barst lögreglu tilkynnig um líkamsárás í Mosfellsbæ á fjórða tímanum. Þar höfðu óboðnir gestir mætt í afmælisveislu. Þegar þeim var vísað út var einn gesta afmælisins sleginn í höfuðið með flösku, svo að blæddi úr enni hans. Þó var ekki talin þörf á að kalla út sjúkrabíl. Árásarmaður var samkvæmt dagbók á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Þá sinnti lögregla eftirliti með sóttvarnaráðstöfunum veitingastaða í Hafnarfirði. Aðstæður á fjórum stöðum voru kannaðar og gerði lögregla engar athugasemdir við aðbúnað neins þeirra.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira