Skoðun

Tímarnir breytast og lög­gjöfin með

Una Hildardóttir skrifar

Í dag samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um kynferðislega friðhelgi. Um er að ræða gríðarlega þarfa breytingu á almennum hegningarlögum sem tryggir fullnægjandi réttarvernd kynferðislegrar friðhelgi einstaklinga. Er frumvarpið partur af einni af þeim fjölmörgu aðgerðunum sem settar voru fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkana; „útrýma kynbundnu ofbeldi, ekki síst stafrænu kynferðisofbeldi.“Með hinum nýju lögum er tekið á ósanngjarnri réttaróvissu sem hefur leitt til óásættanlegrar stöðu þolenda stafræns kynferðisofbeldis. Það er fagnaðarefni að lagaramminn endurspegli loks nýjan raunveruleika sem skapast hefur með tilkomu samfélagsmiðla og nýjunga í samskiptatækni. Þolendur stafræns kynferðisofbeldis hafa lengi kallað eftir úrbótum innan réttarvörslukerfisins en hingað til hefur úrræðaleysi og óskýr lagarammi komið í veg fyrir réttmæta afgreiðslu kærumála. Þetta hefur leitt til þess að ekki sé tekið á málum sem snerta á brotum gegn kynferðislegri friðhelgi með viðunandi hætti. Það er fagnaðarefni að loks geti þolendur stafræns kynferðisofbeldis leitað réttar síns án þess að mæta skilningsleysi innan réttarkerfisins og að réttur þeirra til sanngjarnar meðferðar verði tryggður. Loksins, rúmum 25 árum eftir fyrstu tilfelli brota á kynferðslegri friðhelgi á Íslandi, sem sífellt verða algengari og grófari, endurspeglar löggjöfin raunveruleika þolenda.

Takk konur!

Samþykkt laganna sýnir okkur enn og aftur mikilvægi þess að konur komist í áhrifastöður og hafi tækifæri til þess að gera tímabærar breytingar á löggjöf sem hefur bein áhrif á rétt kvenna yfir eigin líkama og friðhelgi. Það sýndi sig þegar Svandís Svavarsdóttir var í forsvari fyrir ný lög um þungunarrof og þegar frumvarp dómsmálaráðherra um umsáturseinelti varð að lögum fyrr í febrúar. Ég vil þakka þeim konum sem stóðu að baki þessum nauðsynlegu lagabreytingum. Takk Hulda Hólmkelsdóttir og Stigamót, fyrir að berjast fyrir notkun hugtaksins „stafrænt kynferðisofbeldi“ í stað hefndarkláms og hrellikláms. Takk Katrín Jakobsdóttir, fyrir að skipa stýrihóp forsætisráðherra um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi og takk Halla Gunnarsdóttir fyrir að leiða stýrihóp forsætisráðherra. Takk Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrir að fela Maríu Rún Bjarnadóttur starfsmanns stýrihópsins að vinna frumvarpið áfram og takk María fyrir þína ómetanlegu vinnu. Takk þolendur sem stigið hafa fram og gagnrýnt viðbrögð kerfisins og úrræðaleysið sem ykkur hefur mætt. Síðast en ekki síst, vil ég þakka vinkonu minni, Tinnu Ingólfsdóttur. Takk Tinna, fyrir að vekja athygli á stöðu þolenda og áhrifana sem brot á kynferðislegri friðhelgi geta haft á lífsgæði og andlega heilsu. Takk fyrir baráttuna og þá ógleymanlegu innsýn þú veittir mér á vettvang þar sem starfrænt kynferðisofbeldi hefur þrifist hömlulaust. Loksins get ég fagnað, fyrir þig og fyrir okkur öll.

Höfundur er varaþingmaður Vinstri grænna.




Skoðun

Sjá meira


×